Fréttir | 13. sep. 2012 15:37

Ragnar Már sigraði á Duke of York mótinu

Ragnar Már Garðarsson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar vann frækinn sigur í dag á Duke of York mótinu sem lauk í dag á Royal Troon vellinum í Skotlandi. Ragnar sigraði í mótinu eftir að hafa farið í bráðabana gegn þeim Max Orrin frá Englandi og Katja Pogacar frá Slóveníu. Ragnar hafði að lokum betur á þriðju holu í bráðabana.

Ragnar Már lék frábærlega í dag við erfiðar aðstæður. Hann lék á 72 höggum eða pari Royal Troon vallarins og var það besti hringur dagsins. Ragnar lék fyrri níu holurnar á pari og fékk svo fugl á 16. og 17. holu sem að lokum tryggði honum inn í bráðabana um sigurinn. Hann lék samtals á 225 höggum eða níu höggum yfir pari. Mótið er gríðarlega sterkt enda leika aðeins landsmeistarar unglinga í mótinu og því má segja að efnilegustu kylfingar Evrópu og víðar taki þátt í mótinu.

Um frábæran sigur er að ræða fyrir íslenskt golf en þetta er í annað sinn á þremur árum sem íslenskur kylfingur stendur uppi sem sigurvegari í mótinu. Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR vann mótið árið 2010 þegar leikið var á Royal St. George‘s vellinum í Englandi. Það er Andrew Bretaprins sem stendur fyrir mótinu og hefur gert um árabil. Margir frábærir kylfingar hafa tekið þátt í mótinu í gegnum tíðina. Besti kylfingur heims, Rory McIlroy frá Norður-Írlandi, varð í öðru sæti í mótinu árið 2004.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili lék einnig í mótinu og varð í 27. sæti á samtals á 241 höggi. Hún lék lokahringinn á 80 höggum eða átta höggum yfir pari.

Lokastaðan í mótinu

Til baka

Nýjustu fréttir