Ólafur Björn fagnar pútti sínu fyrir fugli á 18. braut í dag.
Fréttir | 19. ágú. 2012 15:46

Ólafur Björn og Ólafía sigruðu í Kiðjabergi

Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnum og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR báru sigur úr býtum á Securitas mótinu sem lauk fyrir stundu á Eimskipsmótaröðinni á Kiðjabergsvelli. Mikil spenna var í báðum flokkum og réðust úrslitin ekki fyrr en á lokaholunum.

Ólafur Björn fagnaði sigri í karlaflokki með einu höggi en hann lék holurnar 54 á samtals pari. Hann fékk fugl á 18. holunni og tryggði sér eins höggs sigur. Þeir Einar Haukur Óskarsson úr GK og Sigurþór Jónsson úr GOS léku samtals á einu höggi yfir pari og urðu að sætta sig við annað sætið.

Í kvennaflokki vann Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR góðan tveggja högga sigur. Hún lék samtals á 11 höggum yfir pari í mótinu. Ólafía lék lokahringinn á 71 höggi eða á pari vallarins. Signý Arnórsdóttir úr GK varð önnur á 13 höggum yfir pari. Þær Ingunn Einarsdóttir úr GKG og Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr GK urðu jafnar í 3.-4. sæti á 15 höggum yfir pari.

Lokastaðan í mótinu

Lokastaða efstu kylfinga í karlaflokki:
1 Ólafur Björn Loftsson NK 70-72-71=213 par
2 Sigurþór Jónsson GOS 70-71-73=214 +1
3 Einar Haukur Óskarsson GK 69-73-72=214 +1
4. Hlynur Geir Hjartarson GOS 72-75-72=219 +6
5.-6 Kristján Þór Einarsson GK 74-75-71=220 +7
5.-6 Guðmundur Ágúst Kristjánsson GR 71-75-74=220 +7
7.-9. Magnús Björn Sigurðsson GL 76-73-72=221 +8
7.-9 Guðjón Henning Hilmarsson GKG 74-71-76=221 +8
7.-9 Andri Þór Björnsson GR 68-75-78=221 +8
10. Rafn Stefán Rafnsson GO 75-77-70=222 +9

Lokastaðan í kvennaflokki:
1. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR 77-76-71=224 +11
2. Signý Arnórsdóttir GK 80-73-73=226 +13
3.-4. Ingunn Einarsdóttir GKG 76-77-75=228 +15
3.-4. Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK 72-77-79=228 +15
5. Karen Guðnadóttir GS 74-83-73=230 +17
6. Þórdís Geirsdóttir GK 79-79-76=234 +21
7. Heiða Guðnadóttir GKJ 79-79-77=235 +22
8. Ingunn Gunnarsdóttir GKG 75-81-81=237 +24
9.-10. Hansína Þorkelsdóttir GKG 87-86-77=250 +37
9.-10. Hildur Kristín Þorvarðardóttir GR 82-86-82=250 +37

Til baka

Nýjustu fréttir