Of Monsters and Men í Opna breska
Opna breska meistaramótið í golfi hófst í morgun á Royal Lytham & St. Annes í Englandi. Aðstæður eru allar hinar bestu og eru margir kylfingar að leika vel. Tiger Woods, Bubba Watson, Graeme McDowell og Adam Scott eru á meðal þeirra sem hafa byrjað vel í dag.
Íslenska hljómsveitin Of Monsters and Men er óvæntur þátttakandi í Opna breska í ár. Í útsendingu BBC frá mótinu hefur lag sveitarinnar, Little Talks, hljómað undir þegar sýnd er samantekt frá hringnum. Íslendingar eiga því sinn þátttakanda á Opna breska í ár.
Hér að neðan má heyra umrætt lag.
Nýjustu fréttir
- Fréttir | 25. maí 2013 15:00Formaðurinn á Akranesi fékk lítinn svefn
- Fréttir | 25. maí 2013 07:40Kuchar efstur eftir annan keppnisdag á Colonial
- Fréttir | 25. maí 2013 00:09Molinari efstur á Wentworth
- Fréttir | 24. maí 2013 19:45Guðrún Brá efst á Akranesi
- Fréttir | 24. maí 2013 14:15Axel tekur forystuna á Akranesi
- Fréttir | 24. maí 2013 14:05Birgir Leifur lék lokahringinn á 67 höggum
