Fréttir | 12. ágú. 2012 23:35

McIlroy: „Er hálf orðlaus“

Rory McIlroy sigraði rétt í þessu á PGA meistaramótinu með miklum yfirburðum en þessi 23 ára Norður-Íri endaði hringina fjóra á Ocean vellinum á Kiawah eyju á 13 höggum undir pari eða átta höggum á undan næsta manni. McIlroy lék gallalaust golf í dag, fékk 12 pör, sex fugla og sigurinn var nánast aldrei í hættu. Þetta er annar risatitill McIlroy en hann sigraði á Opna bandaríska meistaramótinu í fyrra, einnig með miklum yfirburðum. Í sigurræðunni var hann hálf klökkur og þakkaði fyrir stuðninginn sem hann fékk um helgina.

Þetta er ekki sokkið inn ennþá, hringurinn í dag var frábær. Markmiðið hjá mér var bara að forðast vandræði, sækja á réttu augnablikunum og svo duttu nokkur pútt. Mig langar að þakka mömmu og pabba sem eru hérna með mér hérna fyrir allt sem þau hafa gert fyrir mig í gegn um tíðina, einnig öllum þeim sem studdu mig hérna á vellinum um helgina. Að komast í hóp þeirra goðsagna sem eru grafnir á þennan bikar er ótrúlegt, ég er hálf orðlaus.

Næsta mót hjá McIlroy verður Barclays mótið á Bethpage vellinum í New York eftir tvær vikur en lokastöðuna á PGA meistaramótinu má sjá hér.

Til baka

Nýjustu fréttir