Hola í höggi/fréttir | föstudagur 12. september 2008 | 22:43
Ágústa Dúa fór holu í höggi
Ágústa Dúa Jónsdóttir úr Nesklúbbnum náði draumahöggi allra kylfinga á Grafarholtsvelli í gær. Þar fór hún holu í höggi á 11. braut vallarins við mikinn fögnuð þeirra sem voru með henn í holli. Eftir hringinn var afrekinu að sjálfsögðu fagnað með vinkonunum í golfskálanum á tilheyrandi hátt.
Mynd/Frosti: Á myndinni má sjá Ágústu Dúu (3. frá vinstri) og vinkonur hennar fagna með því að skála í kampavíni.