19. holan | fimmtudagur 14. ágúst 2008 | 13:20
Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni!
Helgi Snær Björgvinsson náði því frábæra afreki að fara holu í höggi á 4. braut á golfvelli Keilis í Hafnarfirði í gær. Það er svo sem ekkert nýtt að kylfingar fari holu í höggi en þetta er svolítið sérstakt því Helgi er aðeins 10 ára gamall og líklega yngsti kylfingurinn sem nær draumahögginu á þessum velli. Hann sló af rauðum teig (110m) og notaði 6-járn við höggið góða.
Það má til gamans geta, að Helgi er af stórri golffjölskyldu, sonur Björgvins Sigurbergssonar, sem er margfaldur Íslandsmeistari, og Heiðrúnar Jóhannsdóttur. Björgvin hefur þrisvar farið holu í höggi og afi Helga, Sigurbergur, fór holu í höggi á sömu braut á sínum tíma.
Mynd/Kylfingur.is: Helgi Snær Björgvinsson var að vonum ánægður með draumahögg allra kylfinga.