Hola í höggi/fréttir | mánudagur 11. ágúst 2008 | 19:02
Theodór náði draumahögginu í FH mótinu!
Golfmót FH fór fram sl. föstudag á Hvaleyrinni í blíðskaparveðri. Mjög góð þátttaka var líkt og undanfarin ár, en alls tóku 103 kylfingar þátt að þessu sinni. Mörg snilldartilþrif sáust á golfvellinum enda fullt af góðum golfspilurum í Fimleikafélaginu. Tilþrif dagsins átti þó Theodór Ólafsson sem náði draumahöggi allra kylfinga þegar hann fór holu í höggi á 16. braut, sannarlega glæsilegt. Sigurvegari í höggleiknum og þar með Golfari FH 2008 varð Hafþór Hafliðason á 74 höggum, en hann sigraði eftir bráðabana við Helga Runólfsson og Hálfdán Þórðarson.
Í punktakeppninni karla urðu úrslit eftirfarandi:
Hjörtur Hinriksson 40 punktar
Theodór Ólafsson 39 punktar
Adolf Adolfsson 38 punktar
Hálfdán K.Þórðarson 37 punktar
Kjartan Harðarson 37 punktar
Í punktakeppni kvenna urðu úrslit eftirfarandi:
Jóna Júlía Henningsdóttir 34 punktar
Hildur Harðardóttir 34 punktar
Margrét Berg Theódórsdóttir 29 punktar
Hrafnhildur Þórarinsdóttir 28 punktar
Kristjana Aradóttir 28 punktar
Dalli ljósmyndari var á svæðinu og tók helling af frábærum myndum. Smelltu hér til að skoða myndir af mótinu eða kíktu á http://picasaweb.google.com/dallib58/20080808FHGolf til að skoða fleiri myndir.
Mynd/Dalli: Theodór Ólafsson var ánægður með að ná draumahöggi allra kylfinga og eins náði hann öðru sæti í mótinu með 39 punkta.