19. holan | mánudagur 11. ágúst 2008 | 10:44

Snorri Páll fór holu í höggi á sömu holu og pabbi


Snorri Páll Ólafsson, afrekskylfingur úr GR, fór holu í höggi á 6. holu (176m) á Grafarholtsvelli um helgina og var þetta í fyrsta sinn sem hann nær draumahöggi allra kylfinga. Svo skemmtilega vill til að þetta er sama hola og pabbi hans, Ólafur Skúlason, fór holu í höggi árið 1969. Pabbi hans gerði reyndar enn betur þá því hann fór tvisvar sinnum holu í höggi á sama hringnum; 6. holu og 10. holu, sem var reyndar aðeins 260 metra par-4 hola í þá daga. Snorri Páll sagði að það hefði verið gaman að fara  holu í höggi á sömu holu og pabbi hans. Hann hefði þó ekki átt möguleika á að fara holu í höggi á 10. braut því hún væri yfir 350 metrar í dag.

"Ég var að spila með vini mínum, Ingimari, og sló þetta högg mð 8-járni. Boltinn lenti aðeins vinstra megin við holuna og rúllaði síðan að henni. Við sáum það ekki alveg frá teignum hvort hún hefði farið í eða ekki. Ég sagði reyndar við Ingimar þegar boltinn var í loftinu, "þessi er í". Við gengum því spenntir að holunni og sáum að boltinn var þar og við fögnuðum mikið, svo mikið að Ingimar fékk fossandi blóðnasir. Ég fórnaði golfhanskanum mínum og tróð upp í nefið á honum til að stoppa blóðið. Þetta var ótrúlegt," sagði Snorri Páll.

Sjá kylfingur vikunnar.

Mynd/Kylfingur.is: Hér má sjá Snorra Pál slá af braut á Íslandsmótinu í Vestmanneyjum í síðasta mánuði.