Hola í höggi/fréttir | miðvikudagur 30. júlí 2008 | 00:53
Sigurborg Svala fór holu í höggi á Hlíðavelli
Sigurborg Svala Guðmundsdóttir úr GKJ gerði sér lítið fyrir og náði draumahöggi allra kylfinga þegar hún fór holu í höggi á 10. braut Hlíðavallar í Mosfellsbæ í gær. Óskum við henni til hamingju með höggið og að vera komin í Einherjaklúbbinn. Það voru fjölmargir áhorfendur að högginu góða í blíðunni í gær, auk þess að hún var í holli með eiginmanni sínum og bróðir, sem samfögnuðu með henni eftir hringinn.
Mynd/Kylfingur.is: Frá Hlíðavelli í Mosfellsbæ.