Hola í höggi/fréttir | laugardagur 12. júlí 2008 | 11:23
Tveir keppendur fóru holu í höggi í Leirunni
Það gerist ekki oft að tveir kylfingar í sama móti fari holu í höggi sama daginn, en það gerðist í Meistaramóti Golfklúbbs Suðurnesja á Hólmsvelli í Leiru í gær. Kristján Björgvinsson fór fyrst holu í höggi á 13. braut vallarins og síðar um daginn fór Guðmundur Margeirsson holu í höggi á 16. braut. Þeir voru báðir að ná draumahögginu í fyrsta sinn. Óskum við þeim báðum til hamingju með draumahöggið.
Mynd/Kylfingur.is: Frá Hólmsvelli í Leiru.