Hola í höggi/fréttir | þriðjudagur 1. júlí 2008 | 22:43

Sigurður fór holu í höggi á Bergvíkinni


Sigurður Sævarsson, kylfingur úr GS, gerði sér litið fyrir og fór hölu í höggi á Bergvíkinni á Hólmsvelli í Leiru á Samkaupsmótinu sem haldið var þar í dag. Þetta er í fyrsta skipti sem Sigurður nær draumahöggi allra kylfinga og ekki slæmt að ná því á hinni erfiðu 3. holu í Leirunni. Hann notaði trékylfu við höggið. Óskum við honum til hamingju með höggið.

Þess má geta að Sigurður, sem er með 19 í forgjöf, lék hringinn á sléttum 100 höggum. Hann byrjaði hringinn á pari á 1. holu. Síðan notaði hann 9 högg á 2. holuna og síðan eitt högg á þriðju holu!

Sigurður Jónsson úr GS lék best allra í höggleik í mótinu, kom inn á 75 höggum.


Mynd/Kylfingur.is: Hér má sjá kylfing slá inn á Bergvíkina.