Fréttir | þriðjudagur 19. maí 2009 | 14:24

Sigurjón fór holu í höggi á Kirkjubólsvelli


Sigurjón Ingibjörnsson úr GSG fór holu í höggi á 2. braut á Kirkjubólsvelli í gærkvöldi. Þetta er í fyrsta sinn sem Sigurjón fer holu í höggi en hann var að spila með níu ára syni sínum í gær.

„Ég fékk par á fyrstu holuna og svo holu í höggi á 2. holu. Ég notaði 6-járn, boltinn lenti greenkantinum og rúllaði svo tíu metra beint ofan í. Þetta var fullkomið högg,“ sagði Sigurjón lék ótrúlega vel til að byrja með.

„Það munaði litlu að ég fengi örn á fjórðu holu en sætti mig við fugl. Ég var því á þremur höggum undir pari eftir fjórar holu. Ég náði hins vegar ekki að fylgja því eftir og lék 9. holuna á níu höggum. Ég kom því í hús á 40 höggum,“ sagði Sigurjón sem er með 14.7 í forgjöf.

„Þetta gefur mér klárlega aukið sjálfstraust og ég er ekki að fara að leggja kylfunum. Það er búið að vera tóm hamingja hjá mér í allan dag og margir óskað mér til hamingju,“ sagði Sigurjón sem hefur leikið golf af krafti frá árinu 2003. Viljálmur Steinar Einarsson fór holu í höggi á 5. holu á Kirkjbólsvelli þann 24. apríl síðastliðinn.

Mynd úr safni