19. holan | föstudagur 7. nóvember 2008 | 11:58

Fimm sinnum holu í höggi á 7 dögum!


Curt Hocker, sem er 22 ára frá Illinois í Bandaríkjunum, náði því ótrúlega afreki í síðustu viku að fara fimm sinnum holu í höggi á aðeins sjö dögum. „Eftir að ég fór fyrst holu í höggi sagði ég að það væri ekki möguleiki að endurtaka leikinn. Svo hélt þetta bara áfram og ég sagði við sjálfan mig, þetta er nú bara orðið grín,“ segir Hocker sem fór tvisvar sinnum holu í höggi sl. sunnudag. Hann náði þessum draumahöggum á El Paso vellinum í Illinois þar sem hann vinnur í golfverslun vallarins (pro shop). Fjórar af þessum fimm "hole in one" náði hann á par-4 holu.

Hann segir að hann sé einna mest ánægður með það að golfklúbburinn borgar drykki handa öllum í klúbbhúsinu fari kylfingur holu í höggi. „Ég held að þeir sem stjórna hérna séu að verða pirraðir á að gefa alla þessa drykki út á mig," sagði Hocker sem hefur 10 sinnum farið holu í höggi á síðustu 17 mánuðum.

 

Mynd: Sumir ná því aldrei á ævinni að fara holu í höggi, en svo eru aðrir sem leika þetta nánast daglega eins og umræddur Hocker. Hvaða sanngirni er í því?