Hola í höggi/fréttir | föstudagur 26. september 2008 | 12:01
Tinna fór holu í höggi
Tinna Jóhannsdóttir úr GK, sem stundar nám í University of San Francisco, náði draumahöggi allra kylfinga á háskólamóti í Bandaríkjunum á þriðjudaginn. Þetta er í fyrsta sinn sem hún fer holu í höggi. Tinna náði draumahögginu á 7. holu Trysting Tree vallar í Oregon er hún lék í Giustina Memorial mótinu. Hún notaði 7-járn á þessa 155 jarda holu og kom ásinn á lokahringnum sem hún lék á 75 höggum, eða 3 höggum yfir pari.
Hún lék hringina þrjá á samtals 234 höggum, eða 18 höggum yfir pari (81-78-75) og hafnaði í 19. sæti í einstaklingskeppninni. Skólaliðið hennar, University of San Francisco, USF, hafnaði í þriðja sæti í liðakeppninni. Þetta er annað háskólamótið sem hún tekur þátt í á þessu keppnistímabili. Í síðustu viku varð hún í 27. sæti á móti í Fort Collins.
Tinna stundaði nám í McNeese háskólanum veturinn 2006, en líkaði ekki dvölin og tók sér frí frá námi í fyrra og ákvað að skipta nú um skóla og fór til San Francisco. Tinna er í íslenska landsliðinu sem fer á HM í Ástralíu í næsta mánuði.
Sjá heimasíðu skólans.
Mynd: Hér fagnar Tinna Jóhannsdóttir draumahögginu.
