Fréttir | þriðjudagur 27. september 2011 | 20:06
Haas á skriði upp heimslistann
Bandaríski kylfingurinn Bill Haas er kominn upp í 20. sæti á heimslistanum í golfi eftir magnaðan sigur í Tour Championship mótinu sem lauk á sunnudag. Haas lagði Hunter Mahan í bráðabana um sigurinn og eins og svo margir hafa séð þá átti hann líklega högg ársins þegar hann sló þriðja höggi sínu úr vatni á annarri holu í bráðabana og náði að fella holuna áður en hann tryggði sér sigur á þriðju holu bráðabanans.
Auk þess að hljóta 1,3 milljarða króna í verðlaunafé fyrir að sigra mótið og verða efstur á stigalista mótaraðarinnar, þá skýst Haas upp um 25 sæti á heimslistanum milli vikna og er nú í 20. sæti. Aldrei hefur Haas verið svona ofarlega á heimslistanum en hann hefur nú þrisvar sinnum sigrað á PGA-mótaröðinni.
Luke Donald er sem fyrr í efsta sæti listans eftir að hafa orðið í þriðja sæti í Tour Championship mótinu. Nokkuð er um að kylfingar hafi sætaskipti á meðal tuttugu efstu á listanum og er Webb Simpson sem dæmi kominn upp í 12. sæti listans þrátt fyrir að hafa hafið árið í 213. sæti.
Hér má sjá heimslistann í heild sinni