Fréttir | mánudagur 26. september 2011 | 17:17

Donald safnar stigum til heimslistans - Á langt í met Woods


Luke Donald hefur verið í sérstaklega góðu formi undanfarin tvö keppnistímabil og er eins og flestir vita, efsti kylfingur heims um þessar mundir á heimslistanum. Heimslistann í golfi virkar þannig að árangur kylfinga til síðustu tveggja ára er tekinn saman og reiknaður til stiga. Donald er efstur með 10,72 meðalstig en hann hefur hann safnað sér inn 567,73 stig í þeim 53 mótum sem hann hefur leikið undanfarin tvö ár.

Donald hefur 13 sinnum verið í topp-10 á PGA-mótaröðinni í ár, þ.á.m. sigur í Heimsmótinu í holukeppni. Hann hefur að auki sigrað á tveimur mótum á Evrópumótaröðinni. Það er hins vegar athyglisvert að bera árangur Donald saman við árangur Tiger Woods á heimslistanum þegar Woods var án nokkurs vafa á hátindi ferilsins.

Woods á í raun öll þau met sem í boði eru á heimslistanum. Hann hefur verið lengst í efsta sæti á listanum eða í 623 vikur. Eftir að hann varð handhafi allra fjögurra risatitlanna árið 2001 náði hann hæsta stigafjölda sem kylfingur hefur náð á tveimur árum á heimslistanum. Þann 3. júní 2001 var Woods með 1459,64 stig í 45 mótum eða 32,44 meðalstig. Lykillinn að þessum stigafjölda var án efa fjöldi risasigra sem Woods náði á þessu tveggja ára tímabili.

Á þessum tveimur árum vann Woods alls fimm risatitla. Árið 2000 var hans besta ár en þá vann hann þrjú risamót og sigraði svo í Masters mótinu árið eftir og var þar með handhafi allra fjögurra risatitlanna sem síðar hefur verið kallað ‚Tiger Slemman‘.

Það verður forvitnilegt að sjá hvort nokkrum öðrum kylfingi takist að slá þessum metum Woods við en ljóst er að það verður þrautin þyngri.