Heimslistinn | mánudagur 29. ágúst 2011 | 14:05

Johnson kominn upp í fjórða sæti heimslistans


Dustin Johnson er kominn í fjórða sæti heimslistans í golfi eftir að hafa staðið uppi sem sigurvegari í The Barclays mótinu á PGA-mótaröðinni um helgina. Aðeins voru leiknar 54 holur í mótinu en þrátt fyrir það tókst Johnson að leika á 19 höggum undir pari og varð tveimur höggum á undan Matt Kuchar.

Johnson, sem er 27 ára gamall, hefur aldrei verið svona ofarlega á heimslistanum en hann fer upp fyrir Martin Kaymer og Rory McIlroy á listanum. Johnson var að vinna sitt fyrsta mót í FedEx-úrslitakeppninni sem hófst um síðustu helgi. Hann er einnig kominn á topp stigalistans eftir mótið og á nú góðan möguleika á að vinna sér inn tíu milljónir dollara með því að verða efstur á listanum.

Luke Donald er sem fyrr efstur á listanum og virðist ekki vera að fara að falla af þeim stalli í bráð. Tiger Woods er hins vegar á hraðri niðurleið á listanum og er nú kominn í 38. sæti. Hann leikur ekkert um þessar mundir eftir að hafa ekki komist í úrslitakeppnina í FedEx-bikarnum og mun því væntanlega halda áfram að síga niður listann á komandi vikum.

Staða á heimslistanum