Heimslistinn | mánudagur 15. ágúst 2011 | 13:18

Bradley flýgur upp fyrir Woods á heimslistanum


Bandaríski kylfingurinn Keegan Bradley, sigurvegarinn í PGA Meistaramótinu, fer upp um 79 sæti á milli vikna á heimslistanum í golfi eftir sigur sinn í gær. Bradley er þar með kominn upp í 29. sæti listans og fer upp fyrir Tiger Woods sem er í 33. sæti listans.

Árangur Bradley í ár hefur verið frábær en hann er á sínu fyrsta keppnistímabili á PGA-mótaröðinni. Bradley hóf árið í 329. sæti listans og hefur því unnið sig upp um heil 300 sæti á árinu sem er magnaður árangur.

Englendingurinn Luke Donald er sem fyrr í efsta sæti heimslistans eftir að hafa lent í 8. sæti í PGA Meistaramótinu. Hann hefur unnið sér inn 395 stig til heimslistans í ár eða tvöfaldan þess stigafjölda sem helstu andstæðingar hans á listanum hafa aflað.

Hér má sjá heimslistann í heild sinni.