Heimslistinn | mánudagur 8. ágúst 2011 | 19:33

Scott aftur í topp-10 á heimslistanum


Ástralinn Adam Scott er kominn aftur í topp-10 á heimslistanum eftir sigur sinn í WGC-Bridgestone Invitational mótinu sem lauk í gær á Heimsmótaröðinni. Scott stekkur upp um átta sæti á milli vikna og er nú kominn í 9. sæti listans. Hann var best kominn í þriðja sætið árið 2008 og virðist nú vera kominn í sitt besta form eftir erfiðleika undanfarin ár.

Englendingurinn Luke Donald styrkir stöðu sína í efsta sæti heimslistans og er nú með 10,10 meðalstig í efsta sæti heimslistans. Lee Westwood er annar og Þjóðverjinn Martin Kaymer er þriðji. Rory McIlroy hefur sætaskipti við Steve Stricker og er nú kominn í fjórða sætið.

Tiger Woods er fallinn niður í 30. sæti listans og heldur niðurleið hans niður listann áfram. Ryo Ishikawa stekkur upp um tíu sæti og er nú í 40. sæti eftir að hafa lent í fjórða sæti á Bridgestone Invitational. Rickie Fowler er hins vegar kominn í 28. sæti listans eftir að hafa náð öðru sæti í sama móti.

Staðan á heimslistanum