Heimslistinn | mánudagur 11. júlí 2011 | 13:44

Donald eykur forystuna á toppi heimslistans


Englendingurinn Luke Donald eykur forystu sína á toppi heimslistans í golfi með sigri sínum á Opna skoska mótinu sem lauk í gær á Evrópumótaröðinni. Donald hafði nauma forystu á toppnum á Lee Westwood en bilið á milli þeirra hefur nú aukist. Hann hefur nú 9,74 meðalstig á toppnum en Westwood er annar með 8,62 stig.

Litlar breytingar urðu á heimslistanum þessa vikuna og er Steve Stricker áfram í 5. sæti listans þrátt fyrir sigur sinn í gær á John Deere Classic mótinu. Tiger Woods sígur hins vegar niður listann og er nú kominn niður í 19. sæti listans. Hann hefur ekki keppt síðan hann dró sig úr keppni á Players mótinu í maí en meiðsli hafa verið að plaga Woods að undanförnu.

Hér má sjá heimslistann í heild sinni.