Heimslistinn | mánudagur 4. júlí 2011 | 12:57

Watney í topp-10 á heimslistanum


Bandaríski kylfingurinn Nick Watney er kominn í topp-10 á heimslistanum eftir sigur sinn í AT&T National golfmótinu sem lauk í gær á PGA-mótaröðinni. Hann er í 10. sæti eftir sigurinn og fór upp um fimm sæti á milli vikna. Þetta var hans annar sigur á tímabilinu en áður hafði hann einnig sigrað í Cadillac mótinu á Heimsmótaröðinni.

Frakkinn Thomas Levet tekur heldur betur flug upp heimslistann eftir sigur sinn í Opna franska mótinu á Evrópumótaröðinni. Hann var í 352. sæti fyrir mótið en er núna í 137. sæti.

Ekki urðu miklar breytingar á meðal efstu kylfinga nema að Martin Kaymer er aftur kominn upp í þriðja sæti heimslistans eftir að hafa lent í fjórða sæti í Frakklandi. Hann fer upp fyrir Rory McIlroy sem hefur ekki leikið síðan hann sigraði á Opna bandaríska meistaramótinu.

Staða efstu kylfinga á heimslistanum:


Hér má sjá heimslistann í heild sinni.