Heimslistinn | mánudagur 27. júní 2011 | 11:20

McIlroy upp fyrir Kaymer á heimslistanum


Rory McIlroy er kominn upp í þriðja sætið á heimslistanum í golfi og fer upp fyrir Þjóðverjann Martin Kaymer sem varð aðeins í 18. sæti í BMW International mótinu á Evrópumótaröðinni í gær. McIlroy vann fyrir skömmu Opna bandaríska meistaramótið og tók þá vænt stökk upp listann. Þessi 22ja ára Norður-Íri hefur aldrei verið hærra á listanum en hann er nú með 7,23 meðalstig og er tæpum tveimur stigum á eftir Englendingnum Luke Donald sem er efstur.

Sergio Garcia var hársbreidd frá því að tryggja sér á ný sæti í topp-50 á heimslistanum en hann er í 51. sæti eftir að hafa tapað í bráðabana á BMW mótinu í gær. Svíinn Fredrik Jacobson er kominn upp í 61. sæti eftir að hafa sigrað á Traverles mótinu á PGA-mótaröðinni í gær en hann var fyrir mótið í 110. sæti á listanum.

Hér má sjá heimslistann í heild sinni