Heimslistinn | mánudagur 20. júní 2011 | 15:05

McIlroy upp í fjórða sæti heimslistans


Rory McIlroy er kominn upp í fjórða sætið á heimslistanum eftir sigur sinn á Opna bandaríska meistaramótinu í gær. Hann lék samtals á 16 höggum undir pari og varð átta höggum á undan Ástralanum Jason Day sem varð annar.

McIlroy hefur aldrei verið hærra á listanum en þessi 22ja ára kylfingur var í 8. sæti listans fyrir sigurinn um helgina. Hann er nú með 7,19 meðalstig og er skammt á eftir Þjóðverjarnum Martin Kaymer sem er þriðji.

Luke Donald er áfram í efsta sæti heimslistans en aðeins munaði tveimur höggum að Lee Westwood hefði náð efsta sætinu á nýjan leik. Hefði Westwood orðið einn í öðru sæti hefði hann náð toppsætinu á ný. Tiger Woods heldur áfram að síga niður listann og er nú kominn niður í 17. sæti listans.

Hér má sjá heimslistann í heild sinni