Heimslistinn | mánudagur 6. júní 2011 | 10:58

Stricker upp í fjórða sæti heimslistans


Steve Stricker er kominn upp í fjórða sæti heimslistans í golfi eftir sigur hans í Memorial mótinu á PGA-mótaröðinni í gær. Stricker fer upp fyrir Graeme McDowell sem féll úr fimmta sætinu niður í það áttunda.

Svíinn Alexander Noren fer upp um 47. sæti og er nú í 80. sæti á listanum. Hann fagnaði sigri í Saab Wales Open mótinu í gær. Padraig Harrington er ekki lengur á meðal 50 efstu kylfinga á heimslistanum en hann hefur leikið illa á undanförnum mánuðum.

Luke Donald er í efsta sæti listans en Tiger Woods heldur áfram niðurleið sinni og er núna í 15. sæti listans.

Staða efstu kylfinga á heimslistanum:
1 Luke Donald 9.21
2 Lee Westwood 8.59
3 Martin Kaymer 7.42
4 Steve Stricker 6.54
5 Phil Mickelson 6.06
6 Matt Kuchar 5.67
7 Rory McIlroy 5.50
8 Graeme McDowell 5.45
9 Dustin Johnson 5.16
10 Paul Casey 5.16
11 Charl Schwartzel 5.10
12 Bubba Watson 4.96
13 Ian Poulter 4.89
14 Nick Watney 4.78
15 Tiger Woods 4.69
16 KJ Choi 4.47
17 Jim Furyk 4.29
18 Hunter Mahan 4.22
19 Jason Day 4.19
20 Francesco Molinari 4.10

Hér má sjá heimslistann í heild sinni