Heimslistinn | þriðjudagur 31. maí 2011 | 14:37

Birgir Leifur tók ógnarstökk upp heimslistann


Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr GKG, hefur tekið hressilegt stökk upp heimslistann í golfi að undanförnu. Fyrir nokkrum vikum var hann í um 1350. sæti á listanum en eftir góðan árangur að undanförnu þá er hann kominn í 783. sæti listans og hefur ekki verið hærra á listanum í nokkur ár.

Hann er með 4,20 stig á listanum eða 0,11 meðalstig. Til samanburðar er besti kylfingur heims, Englendingurinn Luke Donald, með 484,20 stig eða 9,14 meðalstig. „Þau gerast ekki flottari stökkin en þetta,“ sagði Birgir og hló þegar blaðamaður Kylfings.is benti honum á uppgang hans á heimslistanum.

Ég er ekkert að spá í þessum heimslista. Það eina sem ég er að hugsa um er næsta högg og er virkilega að njóta þess að vera farinn að keppa á ný.“

Hér má sjá heimslistann