Heimslistinn | mánudagur 30. maí 2011 | 12:26

Loksins stóð Poulter við stóru orðin – Fór upp fyrir Woods


Ian Poulter er kominn upp fyrir Tiger Woods á nýjum heimslista sem birtur var í morgun. Poulter varð í 18. sæti á BMW PGA Championship mótinu sem fram fór á Wentworth vellinum um helgina og það rétt dugði til að Poulter færi upp fyrir Woods.

Poulter er nú kominn upp í 12. sæti en Woods fellur niður í 13. sætið. Árið 2008 sagði Poulter að ef hann næði að leika á fullri getu þá yrði hann betri kylfingur en Woods. Tiger hefur ekki unnið golfmót í 18 mánuði og er án risasigurs síðustu þrjú árin.

Keegan Bradley tók flug upp heimslistann í dag því hann fór upp um 109 sæti og er nú í 94. sæti listans eftir sigur sinn á Byron Nelson mótinu í gær. Luke Donald er kominn í efsta sæti listans eins og áður hefur verið greint frá en hann hefur leikið stórkostlega að undanförnu. Donald sigraði á BMW PGA Championship mótinu eftir að hafa lagt Lee Westwood í bráðabana í uppgjöri tveggja bestu kylfinga heims.

Hér má sjá heimslistann í heild sinni