Heimslistinn | mánudagur 23. maí 2011 | 11:24

Poulter upp í 14. sæti - Woods á hraðleið niður heimslistann


Englendingurinn Ian Poulter er kominn upp í 14. sæti heimslistans eftir sigur sinn á Volvo World Match Play mótinu í gær. Hann fer upp um átta sæti á milli vikna en Poulter hefur verið rokkandi upp og niður listann á undanförnum mánuðum.

Tiger Woods er hins vegar á hraðleið niður heimslistann og er nú fallinn niður í 12. sæti listans. Hann var um árabil í efsta sæti listans en hefur ekki unnið golfmót í um 18 mánuði og því veikist staða hans á listanum dag frá degi.

Charl Schwartzel er kominn upp í 7. sæti listans og fer upp um fimm sæti á milli vikna. David Toms er er á hraðferð upp listann því hann er kominn í 28. sætið eftir sigur sinn á PGA-mótaröðinni í gær. Hann hóf árið 79. sæti en frábær frammistaða hans undanfarnar tvær vikur hafa skilað honum upp um 51 sæti á þessu ári.

Hér má sjá stöðuna á heimslistanum í heild sinni.