Heimslistinn | mánudagur 9. maí 2011 | 10:39

Casey upp fyrir Woods á heimslistanum


Tiger Woods heldur áfram að falla niður heimslistann í golfi og er kominn niður í 8. sæti listans eftir að Paul Casey fór upp fyrir hann í morgun þegar nýr listi var birtur. Casey er kominn upp í 7. sæti þrátt fyrir að hafa ekki komist í gegnum niðurskurðinn á Wells Fargo Championship mótinu á PGA-mótaröðinni um helgina.

Woods átti ekki möguleika á að verja stöðu sína á listanum um helgina vegna meiðsla en mun snúa aftur til leiks um næstu helgi á Players meistaramótinu. Evrópa er sem fyrr í kjörstöðu meðal efstu kylfinga á heimslistanum því sex af tíu efstu á listanum koma frá Evrópu.

Lee Westwood er efstur á listanum en hann gæti misst efsta sætið um helgina til Martin Kaymer eða Luke Donald sem taka þátt í Players mótinu. Lucas Glover sigraði í gær á Fells Fargo Championship mótinu og fer upp um 62 sæti upp í 49. sæti listans.

Efstu kylfingar heimslistans:
1 Lee Westwood 8.07 stig
2 Martin Kaymer 7.42
3 Luke Donald 7.33
4 Phil Mickelson 6.59
5 Graeme McDowell 5.65
6 Rory McIlroy 5.44
7 Paul Casey 5.39
8 Tiger Woods 5.36
9 Steve Stricker 5.33
10 Matt Kuchar 5.26.
11 Bubba Watson 5.21
12 Charl Schwartzel 5.02
13 Dustin Johnson 5.00
14 Jim Furyk 4.74
15 Nick Watney 4.55
16 Ernie Els 4.25
17 Adam Scott 4.24
18 Ian Poulter 4.10
19 Francesco Molinari 4.07
20 Hunter Mahan 4.07

Hér má sjá heimslistann í heild sinni