Heimslistinn | mánudagur 2. maí 2011 | 09:46

Rory upp Tiger á heimslistanum


Nýr heimslisti í golfi var birtur í morgun og styrkti Englendingurinn Lee Westwood stöðu sína á toppi heimslistans. Helsta breytingin þessa vikuna á listanum er sú að Norður-Írinn Rory McIlroy er kominn upp fyrir Tiger Woods í 6. sæti. Woods er þar með fallinn niður í sjöunda sæti og mun ekki bæta stöðu sína næstu vikurnar vegna meiðsla.

Bubba Watson er kominn upp í 10. sæti listans eftir frábæran sigur á Zurich Classic mótinu í gær en þar vann hann sinn þriðja sigur á PGA-mótaröðinni. Litlar breytingar eru þó á listanum þessa vikuna og hafa Evrópumenn enn tögl og haldir meðal efstu kylfinga á heimslistanum.

Staða efstu kylfinga á heimslistanum:
1 Lee Westwood 8.22 stig
2 Martin Kaymer 7.54
3 Luke Donald 7.27
4 Phil Mickelson 6.55
5 Graeme McDowell 5.64
6 Rory McIlroy 5.54
7 Tiger Woods 5.53
8 Paul Casey 5.49
9 Steve Stricker 5.33
10 Bubba Watson 5.24
11 Matt Kuchar 5.23
12 Charl Schwartzel 5.07
13 Dustin Johnson 5.07
14 Jim Furyk 4.78
15 Nick Watney 4.60
16 Ernie Els 4.34
17 Adam Scott 4.21
18 Ian Poulter 4.12
19 Francesco Molinari 4.07
20 Hunter Mahan 4.05

Hér má sjá heimslistann í heild sinni