Heimslistinn | mánudagur 4. apríl 2011 | 16:51
Mickelson upp fyrir Woods í fyrsta sinn í 14 ár
Phil Mickelson náði sögulegum áfanga í dag þegar hann fór upp í þriðja sætið á heimslistanum og fór einnig upp fyrir Tiger Woods á heimslistanum. Síðasta var Mickelson fyrir ofan Woods á listanum fyrir nákvæmlega 14 árum, eða vikunni á undan Masters mótið árið 1997. Woods vann mótið það ár og fór upp í efsta sæti heimslistans.
Martin Kaymer er sem fyrr í efsta sæti heimslistans en miklar breytingar gætu orðið á heimslistanum í Masters mótinu sem hefst á fimmtudag því sjö kylfingar gætu setið í efsta sæti listans þegar helgin er öll. Leiki Woods ekki vel í mótinu gæti hann einnig dottið út af topp-10 á heimslistanum sem yrðu svo sannarlega söguleg tíðindi.
Hér má sjá heimslistann í heild sinni
Staða efstu kylfinga á heimslistanum:
