Heimslistinn | mánudagur 8. nóvember 2010 | 10:29
Molinari fer upp um 16 sæti á heimslistanum
Ítalinn Francesco Molinari er kominn í 14. sætið á heimslistanum eftir sigurinn á HSBC Champions mótinu sem fram fór um helgina á heimsmótaröðinni. Hann hafði betur gegn Lee Westwood um sigurinn sem er hans annar á stóru mótaröðunum.
Molinari fer upp um 16 sæti á milli vikna en hann var í 30. sæti fyrir helgina. Áður hafði Molinari unnið á Italian Open mótinu árið 2006 og hefur náð nýjum hæðum á golfferlinum. Hann hefur aldrei verið ofar á heimslistanum og er nú þremur sætum fyrir ofan Edoardo bróður sinn sem vann þrjú mót á Evrópumótaröðinni í ár.
Lee Westwood styrkti stöðu sína í efsta sæti heimslistans með árangri sínum um helgina. Hann er nú 0,63 meðstigum fyrir ofan Tiger Woods sem er í öðru sæti. Kylfingurinn Warren Abery tekur flugið þessa vikuna á heimslistanum og fer upp um 480 sæti og situr nú í 412. sæti. Hann sigraði á Nashua Masters á Sunshine mótaröðinni sem leikinn er í Suður-Afríku og flýgur upp heimslistann.
Staða efstu kylfinga á heimslistanum:
1. Lee Westwood, Eng 8.84
2. Tiger Woods, USA 8.21
3. Martin Kaymer, Deu 7.96
4. Phil Mickelson, USA 7.73
5. Steve Stricker, USA 7.07
6. Jim Furyk, USA 6.98
7. Paul Casey, Eng 6.27
8. Luke Donald, Eng 5.97
9. Rory McIlroy, Nir 5.53
10. Graeme McDowell, Nir 5.41
11. Matt Kuchar, USA 5.28
12. Ernie Els, Zaf 5.22
13. Dustin Johnson, USA 5.04
14. Francesco Molinari, Ita 4.58
15. Ian Poulter, Eng 4.55
16. Hunter Mahan, USA 4.40
17. Edoardo Molinari, Ita 4.38
18. Retief Goosen, Zaf 4.35
19. Zach Johnson, USA 4.07
20. Padraig Harrington, Irl 4.03
Hér má sjá heimslistann í heild