leirutilboð
Bookmark and Share

Fréttir | mánudagur 6. apríl 2009 | 09:55

Heimslistinn: Hoey hástökkvarinn - Tiger enn á toppnum


Michael Hoey er hástökkvari vikunnar á Heimslistanum í golfi sem kynntur var í morgun. Sigurinn á Opna portúgalska mótinu á Evrópumótaröðinni fleytti honum upp um 125. sæti, eða upp í 148. sæti.

Annar sigurvegari helgarinnar, Paul Casey, sem sigraði í Houston, fór úr 12. sæti upp í það 6. Hann hefur því farið upp um 35 sæti það sem af er árinu og aldeilis fundið sveifluna, því eftir að hafa ekki unnið í tvö ár hefur hann nú þegar sigrað á tveimur mótum og komst í úrslitin á heimsmótinu í holukeppni.

Vart kemur á óvart að Tiger Woods vermir efsta sætið, 200. vikuna í röð, en þar hefur hann setið í efsta sæti í alls 542 vikur á ferlinum.

Hér er staða efstu manna:

1 Tiger Woods 9.83 stig
2 Phil Mickelson 8.37
3 Sergio Garcia 7.28
4 Geoff Ogilvy 6.43
5 Padraig Harrington 5.86
6 Paul Casey 5.55
7 Vijay Singh 5.52
8 Henrik Stenson 5.12
9 Robert Karlsson 4.94
10 Camilo Villegas 4.84

11 Kenny Perry 4.79
12 Steve Stricker 4.29
13 Lee Westwood 4.23
14 Anthony Kim 4.20
15 Jim Furyk 4.13
16 Ernie Els 4.09
17 Rory McIlroy 3.96 
18 Stewart Cink 3.63
19 Mike Weir 3.59
20 Martin Kaymer 3.40