Hleð inn spilara...
GolfTV | 28. júl. 2012 22:51

GolfTV: Frábær örn hjá Haraldi af 100 metra færi

Haraldur Franklín Magnús úr GR fékk frábæran örn á 17. holu í dag á Strandarvelli á Hellu. Haraldur sló niður öðru höggi sínu af um 100 metra færi og lék því þessa par-4 braut á tveimur höggum.

Með sanni má segja að Haraldur hafi haft heppnina með sér en boltinn lenti hægra megin við holuna, af braut séð, og hoppaði í átt að holu og beint niður. Örninn gat ekki komið á betri tíma fyrir Harald sem fékk svo fugl á 18. braut og er í forystu í mótinu ásamt Rúnari Arnórssyni á samtals fimm höggum undir pari.

Axel Bóasson úr Keili sló eftir Haraldi á 17. braut í dag og endaði bolti hans innan við feti frá holunni. Axel var óheppni að fá ekki örn líkt og Haraldur. Kylfingur.is var á staðnum og myndaði höggin hjá Axel og Haraldi eins og sjá má hér að ofan.

 

Til baka

Nýjustu fréttir