Jón Ásgeir sló fyrsta höggið í morgun. Mynd/Kylfingur.is
Forseti GSÍ setti 70. Íslandsmótið í höggleik
Það var Jón Ásgeir Eyjólfsson, forseti GSÍ, sem sló fyrsta höggið í Íslandsmótinu í höggleik sem fram fer á Strandarvelli á Hellu. Mótið hófst kl. 07:30 í morgun. Þetta er í 70. sinn sem mótið er haldið en Golfsamband Íslands fagnar 70 ára afmæli í ár.
Golfklúbbur Hellu fagnar 60 ára afmæli sínu í ár og því var viðeigandi að mótið færi fram á Strandarvelli í ár. Teighöggið hjá Jóni Ásgeiri var hnitmiðað beint á braut og hefðu kylfingar úr fyrsta ráshópi vafalaust tekið höggi hans fegins hendi eftir að hafa slegið hægra megin við braut í þungan karga.
Aðstæður eru allar hinar bestu á Hellu, sól og lítill vindur. Kylfingar eru farnir að streyma að til að undirbúa sig fyrir stærsta mót ársins. Ræst er út frá kl. 07:30 til 15:50 í dag og því má búast við að síðustu ráshóparnir séu að koma í hús laust fyrir kl. 21 í kvöld.

- Fréttir | 25. maí 2013 07:40Kuchar efstur eftir annan keppnisdag á Colonial
- Fréttir | 25. maí 2013 00:09Molinari efstur á Wentworth
- Fréttir | 24. maí 2013 19:45Guðrún Brá efst á Akranesi
- Fréttir | 24. maí 2013 14:15Axel tekur forystuna á Akranesi
- Fréttir | 24. maí 2013 14:05Birgir Leifur lék lokahringinn á 67 höggum
- Fréttir | 24. maí 2013 10:44Framkvæmdastjóri Evrópumótaraðarinnar baðst afsökunar
