Mynd/Kylfingur.is: Axel Bóasson
Fréttir | 04. júl. 2012 12:15

Axel og Rúnar svara fyrir sig á golfvellinum - Léku vel undir pari

Íslandsmeistarinn í höggleik, Axel Bóasson úr Keili, var svekktur með að fá ekki sæti í íslenska landsliðinu sem keppir í European Challenge Trophy mótinu í næstu viku á Hvaleyrarvelli. Hann hlaut ekki náð fyrir augum Úlfars Jónssonar, landsliðsþjálfara.

Axel ætlar greinilega að svara fyrir sig á golfvellinum og lék hann Hvaleyrarvöll í morgun á 67 höggum eða fjórum höggum undir pari á fyrsta hring í Meistaramóti Keilis í meistaraflokki karla. Skorkortið hjá Axel var hreint en hann fékk fjóra fugla og 14 pör á hringnum í morgun.

Rúnar Arnórsson úr Keili var einnig einn þeirra sem var nálægt landsliðssæti og sýndi að hann getur einnig leikið vel undir pari. Hann er efstur eftir fyrsta keppnisdag eftir að hafa leikið á 66 höggum eða fimm höggum undir pari. Rúnar leiðir með einu höggi eftir fyrsta keppnisdag.

Tinna Jóhannsdóttir úr Keili er efst í kvennaflokki en hún lék á 70 höggum í dag eða einu höggi undir pari. Hún er þremur höggum á undan Signýju Arnórsdóttur úr Keili sem er önnur.

Staðan í m.fl. karla í Meistaramóti Keilis:
1. Rúnar Arnórsson GK 66 -5
2. Axel Bóasson GK 67 -4
3. Dagur Ebenezersson GK 69 -2
4. Björgvin Sigurbergsson GK 71 par
5. Birgir Björn Magnússon GK 71 par

Staðan í m.fl. kvenna í Meistaramóti Keilis:
1. Tinna Jóhannsdóttir     GK 70 -1
2. Signý Arnórsdóttir     GK 73 +2
3. Þórdís Geirsdóttir     GK 79 +8


Rúnar Arnórsson úr Keili er efstur í Meistaramóti Keilis.

Til baka

Nýjustu fréttir