Á vellinum með Röggu | sunnudagur 31. júlí 2005 | 08:55

Láttu andann koma yfir þig


Þegar Birgir Leifur Hafþórsson vinur minn, vann Íslandsmótið á Akranesi árið 2004 var hann spurður af sjónvarpsfréttamanni fyrir lokahringinn hvort það væri ekki leiðinlegt að spila svona golf þar sem ekkert gerðist, öll teighögg á braut og fuglafæri á hverri flöt . 

Þegar þú spilar vel, þá er mjög algengt að stöðugleikinn sé allsráðandi, hvorki mikið um mistök né yfirmáta góða hluti(hvað eru góðir hlutir er afstætt).  Það getur jafnvel verið svo mikill stöðugleiki að það verður hálf pirrandi(allavega fyrir afbrýðissama sjónvarpsfréttamenn hehe). 

Það sem er þó ánægjulegast(fyrir utan tölurnar á skorkortinu) er tilfinningin sem stöðugleikinn veitir eða öllu heldur tilfinningin sem skapar stöðugleikann, þessi þægilegi taktur eða tempó sem stýrir hverri hreyfingu þinni.  Sumir kalla þetta að komast í ham eða falla í trans.
Ekki bíða eftir því að andinn komi yfir þig(það gæti orðið löng bið), þú getur og átt að skapa þessa tilfinningu sjálfur.

Finndu þann takt sem hentar þér

Fyrsta skrefið er að finna þann takt sem hentar þér.  Oft tengist góður taktur ákveðinni sveifluhugsun.  Til dæmis hentar mér mjög vel að hugsa um axlasnúninginn í teighöggunum, ef ég klára snúninginn veit ég að hraðinn hefur verið réttur og ég get stólað á það að allt verði í réttum hlutföllum í framsveiflunni.

Ef að þú vilt sveifla mjúkt og rólega gæti hentað þér að ganga rólega og einbeita þér að önduninni.
Ef þú aftur á móti ert sókndjarfur leikmaður og pumpast upp þegar allt fer að ganga þér í hag getur hentað þér að ganga hraðar og nýta  þér hita augnabliksins til hins ýtrasta.

Reyndu að láta umhverfið ekki hafa of mikil áhrif á þig.   Það er algengt að heyra kylfinga kvarta undan því að hollið á undan hafi verið svo lengi að spila að þeir  hafi misst dampinn.  Í stað þess að láta aðstæðurnar stjórna hugarástandi þínu skalt þú hafa stjórn á aðstæðunum.  Ég reyni að forðast það að bíða eftir högginu mínu heldur nota tímann vel til að undirbúa mig.  Ef að hollið á undan er lengi að spila eða leikmaður í hollinu mínu tefur leik reyni ég að haga mínum leik þannig að það komi sem best út fyrir mig.

Því sem við fáum ekki breytt verður ekki breytt og því er nauðsynlegt að haga seglum eftir vindi til þess að útkoman verði sem hagkvæmust fyrir okkur á hverjum tíma.

Stöðugleiki er mikilvægur

Um leið og þú hefur fundið taktinn sem hentar, reyndu þá að einbeita þér að honum í öllu sem þú gerir, ekki bara sveiflunni. 
Hvert einasta högg mun ekki verða fullkomið(það er það ekki hjá neinum). En ef þú vilt hægja á sveiflunni mun það ganga betur ef allt er gert á sama hraða, jafnvel hvernig þú klæðir þig og kemur þér á golfvöllinn. 

Ef þér líður betur í hröðum takti, skaltu samt ekki flýta þér.  þú munt aldrei sjá atvinnumann í golfi mæta á svæðið  12 mínútum áður en hann á teigtíma, flýta sér út á æfingasvæði, slá 6 drive og hlaupa svo á teiginn.  Samt sem áður er fjöldinn allur af kylfingum sem sést gera þetta dag hvern á völlum út um víða veröld.  Er það nokkuð skrítið þó áhugamenn eigi oft erfitt með að spila á forgjöfinni sinni?  Haltu orkuþrepinu háu á annan hátt.  Hlustaðu á taktfasta tónlist og skipuleggðu þig þannig að þú þurfir ekki að bíða eftir teigtímanum þínum.  Haltu taktinum jöfnum og þér mun ganga betur að láta andann koma yfir þig.