Á vellinum með Röggu | föstudagur 15. júlí 2005 | 17:07

Haltu þér á tánum.....



Forðastu að verða of afslappaður....!
Hvað stendur í vegi fyrir því að áhugamaðurinn nái að skora eins vel og hann getur?  Ég tel að oft megi það rekja til þess að kylfingar reyna að slaka um of á spennunni.  Jákvæð spenna getur nefnilega verið af hinu góða.

Of mikil afslöppun getur skapað vandræði sérstaklega ef kylfingurinn er að spila betur en hann er vanur eða er að setja persónuleg met.  Margir mætir menn(og konur)  hafa t.d. lent í því að mega fá skolla á 2 síðustu til að bæta metið sitt, en missa svo niður um sig buxurnar lenda í tómu tjóni og glutra tækifærinu út úr höndunum á sér. 

Afslöppun eyðileggur ekki fyrir atvinnumönnum eins og t.d.  David Duval, Tiger Woods, og  Davis Love, III. heldur nýta þeir sér hana til þessa að urra sig aftur í gírinn. Algengara er að þeir nái að koma til baka eftir lélega byrjun heldur en að missa frá sér góð tækifæri, breyta 76 í 72 svo dæmi séu nefnd.

Þegar atvinnumaðurinn er undir pari er hugsun hans ekki sú að komast stórslysalaust inn í klúbbhús.  Hann ætlar sér stærri hluti, sækir og reynir að spila enn betur.   Þessi hugsun er fjarlæg mörgum áhugamanninum þegar hann er t.d. í þeirri stöðu að geta hugsanlega bætt persónulegt met.  Hættan er að falla í þá gryfju að reyna að halda í það sem hefur áunnist í stað þess að ætla sér lengra!  Áður en maður veit af er maður farinn að spila varnargolf og búmm!  Spilin snúast í höndunum á manni.

Það að setja persónulegt met krefst ákveðinna hæfileika.  Góðir kylfingar spila vel vegna þess að þeir vita hvernig á að æfa á árangursríkan hátt.  Það að bæta árangurinn er mjög ofarlega á forgangslistanum og þeir vita nákvæmlega hvernig best er að undirbúa sig fyrir góðan golfhring.   Þá erum við ekki að tala um að slá úr tveimur fötum til þess að vera skotheldur fyrir leik morgundagsins. Atvinnumenn leggja áherslu á gæði umfram magn, einbeittan undirbúning og það að bæta sig á hverjum degi.  Þessi atriði eru afar mikilvæg vilji maður byggja upp gott sjálfstraust.

Til þess að ná því að koma inn á lágu skori þarftu líka að gera þér í hugarlund hvernig þú ætlar að spila völlinn/gera leikskipulag og geta höndlað utanaðkomandi truflanir t.d. frá meðspilurum. 

Þú þarft að æfa þannig að sveiflan þín verði einsleit, þú getir gengið að henni vísri.  Atvinnumennirnir velja að slá boltann annaðhvort til vinstri eða hægri. Þeir reyna yfirleitt ekki að slá beint þar sem skekkjumörkin geta verið í báðar áttir og þú þarft að reikna með víðara svæði til að hitta.   Þú þarft að læra að leggja áherslu á réttu höggin og skora þegar mikið liggur við. Eins þarftu að reyna að einfalda leik þinn þannig að þú getir einbeitt þér að því að skora í stað þess að vera alltaf að fikta í einhverjum tækniatriðum. Það að skora lágt krefst líka þess að þú einblínir á stund og stað í stað þess að hugsa um það sem er búið og það sem á eftir að gerast.

Fyrsta skrefið er að losa um árangurshöftin sem þú setur þér sjálfur(the sky is the limit!!!!!). Viljirðu ná árangri skaltu skilgreina hugarþröskuldana þína sem hamla þér að spila eins vel og þú mögulega getur. Næsta skref er svo að losna við óheilbrigðar og óraunhæfar hugsanir svo þú getir sleppt snillingnum í sjálfum þér lausum.

T.d. Þegar hlaupagikkurinn Roger Banister náði því að bæta heimsmetið í 4 mílna hlaupi, komu allir hinir hlaupagikkirnir á eftir vegna þess að ísinn hafði verið brotinn.  Fyrsta skrefið er að brjóta á bak aftur þau takmörk sem þú setur sjálfum þér.
Stattu þig strákur/stelpa, og sýndu okkur hvað í þér býr!!