Á vellinum með Röggu | föstudagur 15. júlí 2005 | 16:55
Dæmigert hættuástand á golfvellinum
Ákveðin atvik á golfvellinum eru líklegri en önnur til þess að koma kylfingum úr jafnvægi, jafvel þeim reyndustu.
Í golfi gefst tími til þess milli högga að hugleiða, og ef maður passar sig ekki geta neikvæðar hugsanir átt greiða leið í kollinn á manni, þar sem þær geta orðið að tifandi tímasprengju. Þetta er eitthvað sem gerist æði oft, hjá ansi mörgum. Mikilvægt er að bægja þessum neikvæðu hugsunum frá sér – helst áður en þær láta á sér kræla. Um leið og neikvæð hugsun er farin að grassera í hugarfylgsnunum, getur hún orðið að miklu stærra vandamáli sem eyðileggur fyrir þér það sem eftir er af annars ágætum hring.
Hvenær er hættan mest? Listinn hér að neðan kemur þér kannski ekki á óvart. „Láttu þetta ekki henda þig“ eru gáfuleg viðvörunarorð; Hægara er þó sagt en gert:
• Rétt eftir að þú hefur slegið teighöggið á fyrstu:
Þessi tímasetning er mikilvæg og hefur oft úrslitavald um það hvernig hringurinn muni ganga. Hugsanir þínar áður en þú slærð fyrsta höggið, og einnig viðbrögð þín við því ef ekki tekst til sem skyldi hafa gífurleg áhrif. Vertu vakandi og einbeittur, og gættu að því að hugsanir þínar snúist einungis um það sem jákvætt er – vegna þess að það sem þú einbeitir þér að víkkar út.
• Strax eftir að kylfingur hefur komið sér í vandræði – t.d. ef boltinn hefur hafnað í bönker, vatnsgryfju, eða úti í móa.
Neikvæð og tilfinningarík viðbrögð við slíkum höggum geta sent kylfinginn í djúpan táradal ef hann gætir ekki að sér, það er mikilvægt að eiga til í pokahorninu varnarviðbrögð á svona stundum. Í því gæti t.d. falist sefandi, jákvæð sjálfsdáleiðsla, sem þurrkar út allar neikvæðar hugsanir. Það að láta ekki bugast á slíkri stundu er sérlega mikilvægt sé tekið tillit til þess að næsta högg krefst allrar þinnar einbeitingar.
• Strax að lokinni holu þar sem þú hefur þrípúttað(eða meira), eða ef þú hefur fengið sprengju(meira en 2 yfir pari).
Árangur á leikinni holu getur haft gífurleg áhrif á framvindu mála á þeirri næstu, hafi hlutirnir ekki gengið eins og óskað var eftir – svo, ef þú ert dapur eða reiður yfir frammistöðunni á flötinni eða brautinni, vertu þá viss um að þú sért búin að bægja þeim hugsunum frá þér áður en þú stillir boltanum upp á næsta teig.
• Strax eftir lélegt högg
Láttu ekki eitt lélegt högg eyðileggja fyrir þér allan hringinn, með því að velta þér upp úr því. Vertu snöggur að kippa myndinni út úr minninu, hentu henni í ruslatunnuna og endurstilltu einbeitinguna á það högg sem framundan er. Á þessari stundu gæti verið gott að hugsa um góðu höggin sem þú hefur slegið og einbeita sér að tilfinningunum sem streymdu um kroppinn þá.
• Þessir tímapunktar eru varasamir vilji maður forðast að breyta góðum hring í martröð – vertu vakandi þegar þú upplifir svona stundir á golfvellinum, og reyndu að viðhalda jákvæðu hugsununum þínum. Það ert þú einn sem ert við stjórnvölinn – þú einn sem ræður því hvert hugur þinn reikar. Gakktu úr skugga um að hugurinn velji hugsanirnar skynsamlega og byggðu þannig upp orkuríkt eldsneyti fyrir höggin sem á eftir koma.
-kveðja, Ragga.