Á vellinum með Röggu | þriðjudagur 5. júní 2007 | 09:38

Lækkaðu skorið þitt


Ragnhildur Sigurðardóttir, atvinnukylfingur úr GR, hefur sent frá sér pistil þar sem hún talar um að gott skipulag í golfleik sé gulls ígildi.

"Atvinnumaðurinn skorar þegar hann fær fugla og  erni.  Hinn almenni kylfingur nær sér í punkta með  pörunum sem hann safnar saman á ferð sinni um völlinn.  Lykillinn að góðu skori felst þó að stórum hluta í því að halda sig frá hættunum.  Golf er leikur mistaka og allir gera mistök, bara mis afdrifarík.  Sá sem gerir þau fæst stendur oftast uppi sem sigurvegari í mótslok.  

Teighöggin í leik! 
Ef dræverinn er stríðinn er lausnin yfirleitt ekki sú að hamr´ann.  Að koma teighögginu á brautina er fyrsta skrefið að betra skori.  Ekki láta kraftadelluna koma þér í koll!  Sveiflaðu þannig að takturinn og sveifluhraðinn gefi þér möguleika á að stjórna kylfunni og gættu þess að gripþrýstingurinn sé ekki meiri en svo að þú hafir tilfinningu fyrir þyngd kylfuhaussins.

Ef við gefum gripþrýstingi vægi frá einum upp í tíu skaltu nota gripþrýsting 6 þegar þú sveiflar kylfunni.  

Flinkur með fleygjárnin!
Góður fleygjárnaspilari tekur pressuna af spilinu sínu.  Hann þarf ekki að hitta flatir til þess að ná sér í pör.  Til þess að tryggja gott gengi með fleygjárnum forðastu þá að hjálpa boltanum upp í loftið með úlnliðunum.  Góð lengdarstjórnun hefst með góðri snertingu kylfunnar við boltann, reyndu því að koma höndunum fram fyrir boltann í höggstöðunni og þá á vinstra handarbak að  vera flatt.  Hægri lófi ætti að vísa í höggstefnu þegar boltinn pressast af stað. 

Ákveðinn í stuttum púttum!
Það að setja niður öll pútt innan við  2 metra gæti þýtt 10 högga lækkun á skorkortinu á hverjum hring.  Þar sem strokan er stutt og hliðarhalli hefur lítil áhrif veltur útkoman nánast eingöngu á hugarástandi kylfingsins. Gættu þess að vera ekki of varkár og ekki reyna að stýra boltanum í holu.  Styttu bakstrokuna, púttaðu ákveðið og haltu púttershausnum hornréttum á holuna allan tímann.

EKKI horfa á eftir boltanum – hlustaðu á hann detta!!
Upplit er óvinur númer eitt í stuttum púttum.

Reyndu við flötina í 2 á par 5!
Á styttri par 5 brautum er freystandi fyrir högglanga að reyna við flötina í 2 höggum. En hvernig stoppar maður þá 3 tréð á flötinni?  Æfðu þig að slá fade.  Miðaðu höggfleti kylfunnar á lendingarstaðinn en stilltu líkamanum upp opnum.  Ef högglengdin þín gefur tækifæri, mun ,,feidaður,, bolti fljúga hærra og lenda mjúklegar heldur en bein eða dregin högg.

Stöðvaðu blæðinguna!
Vandi

·   Þú færð nokkur pör—jafnvel einn fugl eða tvo—þá skyndilega gerist eitthvað og skollastrætó tekur völdin.  Áður en þú veist af hefur skorið hækkað upp úr öllu valdi sem og spennustig líkamans.
Lausn úr vanda

·   Flestir kylfingar leika hraðar þegar illa gengur.  Berstu á móti því.  Reyndu að hugsa um eitt högg í einu, þannig verður takturinn betri og möguleikar á endurheimtum aukast til muna. Drekktu vatn, dragðu djúpt andann nokkrum sinnum, reimaðu skóna þína og skiptu um bolta.  Finndu þér eitthvað sem hjálpar þér að byrja upp á nýtt. 

 

Púttaðu þrjóskur!
Þessi æfing tekur tíma en þess vegna er hún svo góð!
·   Byrjaðu 2 fet frá holunni, stingdu niður 7 tíum með fets millibili frá 2 upp í 8 fet.  Gættu að því að púttlínan sé hallalaus.
·   Við 2ja feta merkið, ýttu 10 boltum ofan í holuna-án bakstroku.  Það að ýta boltanum leggur áherslu á framstrokuna.  Ef þú hittir ekki þarftu að byrja upp á nýtt.
·   Færðu þig að 3ja feta tíinu, ýttu nokkrum í viðbót, púttaðu svo 10 boltum á hefðbundinn hátt.  Ef þú missir einn verður þú að byrja upp á nýtt á BYRJUNARREIT (2 fet)
·   Púttaðu 10 sinnum á hverri stöð eftir þetta. Mundu! Ef eitt pútt ratar ekki í holu ertu kominn aftur á byrjunarreit. 

Meistarar æfa sig!
Þú gætir hafa heyrt það áður að besta leiðin til að lækka skorið  er að bæta sig í stutta spilinu.  Það er að vísu háð styrkleikum og veikleikum hvers og eins , en engu að síður reynist þetta rétt fyrir bróðurpart allra kylfinga.  Til þess að gera stuttaspilsæfingrnar markvissar, árangursríkar og skemmtilegar skaltu leika þér.

Skoraðu á félagana!!
1. Veldu holu á æfingaflötinni, hvor leikmaður vippar eða pitchar frá fyrirfram ákveðnum stað að holu.
2. Hvor leikmaður um sig púttar út.
3. Skor -1 stig fyrir upp og niður, 0 stig fyrir 3 högg og +1stig fyrir 4 högg eða fleiri.
4. Leikmaðurinn með fæst stigin velur næstu holu og hvaðan skal slegið. Sá sem er á lægsta skori eftir 9 holur vinnur.

5. Verið dugleg að útfæra leikinn eftir eigin höfði, mismunandi legur, halli, kylfur, aðferðir(lobb, rúll, o.s.frv).

Gangi ykkur vel,  Ragga.

S fleiri pistla “Á vellinum með Röggu”