Á vellinum með Röggu | fimmtudagur 7. júlí 2005 | 21:36
Ragnhildur: “Ekki eins slæmt og tölurnar segja”
Ragnhildur Sigurðardóttir úr GR sagðist vera mjög sátt við golfið sem hún spilaði á fyrsta hring á Telia-mótaröðinni í Svíþjóð í dag, en hins vegar var hún ekki sátt við skorið. Hún lék hringinn á sjö höggum yfir pari og er um miðjan hóp keppenda. “Dagurinn var ekki eins slæmur og tölurnar sýna. Ég var að spila mjög vel nánast allar holur nema þessar þrjár sem ég fékk dobble bogey (tvöfaldan skolla),” sagði Ragnhildur.
“Flatirnar eru mjög ósléttar þannig að það þarf að vera mjög góður í
lestri, sérstaklega svona útlenskum lestri! Ég var ad krækja boltanum hvað eftir annað og birdipúttin mín ulluðu á mig alltaf nema einu sinni. Sveiflubreytingarnar mínar eru að gera það fyrir mig sem ég hef verið að sækjast eftir, en þær eru ekki alveg komnar til að vera enn þó svo að ég hafi talið svo vera eftir mótið á Skaganum,” segir Ragnhildur.
“Æfingarnar eftir hringinn í dag gengu mjög vel og ég tel mig hafa fundið það
sem ekki var að ganga í dag. Völlurinn er mjög krefjandi og það er
hreinlega bannað að fara útaf. Þar er mikið og þykkt röff á öllum brautum
og þar sem ég fór útaf (3 sinnum) fékk ég dobble bogey. Sem dæmi um
röffid týndu meðspilarar mínir báðir bolta við hliðina á flöt,” sagði hún og lofaði að standa sig betur á morgun.
Skorkort Ragnhildar.