Á vellinum með Röggu | miðvikudagur 27. desember 2006 | 12:58
Bakþankar geta gert gæfumuninn!
Ragnhildur Sigurðardóttir, golfleiðbeinandi, hefur sent frá sér nýjan pistil: "Golf er bæði líkamleg og andleg íþrótt. Þú kemst ekki upp með að einbeita þér eingöngu að öðrum hvorum þessarra þátta, svo einfalt er það. Hvers virði er t.d. kraftmikil sveifla ef miðið er rangt eða ákvarðanatakan út í hött? Fyrst þarf að taka með í reikninginn utanaðkomandi áhrifavalda, vind lendingarsvæði hvaða kylfa hentar best o.s.frv.
Flestir golfkennarar leggja áherslu á líkamlega þáttinn við nemendur sína. Það felur í sér að stunda líkamsrækt við hæfi hvers og eins, neyta hollrar fæðu og huga að liðleika. Þessir þættir hjálpa þér að byggja upp og viðhalda krafti og úthaldi sem kylfingur þarf, vilji hann ná árangri.
Áherslu ber að leggja á efri part líkamans og þá sérstaklega á bakið. Hvort sem okkur líkar það betur eða verr þá getur veikt bak eyðilagt og jafnvel komið í veg fyrir það að við getum spilað golf. Léleg uppstilling og líkamsbeiting í sveiflunni getur einnig bakað okkur vandræði og valdið okkur líkamlegum skaða.
Hér koma nokkrir bakþankar frá mér:
Gakktu eins mikið og þú mögulega getur, ekki bara á vellinum. Leggðu bílnum ekki við dyrnar á Bónus heldur í stæðið sem er lengst í burtu. Taktu tröppurnar frekar en lyftuna og svo framvegis.
Ef þú ætlar að nota burðarpoka skaltu gæta þess að hafa ólar fyrir báðar axlir en ekki bera pokann á annarri öxlinni. Það veldur misbeitingu í bakvöðvunum sem getur haft afdrifaríkar afleiðingar sérstaklega ef pokinn er þungur.
Ekki gleyma upphituninni og teygjunum fyrir og eftir golfæfingar og hringi. Það hjálpar þér að koma í veg fyrir og minnka áhrifin ef þú verður fyrir hnjaski;) Það er meira að segja þjóðráð að teygja á sér og liðka sig meðan á æfingum og eða spili stendur, það mýkir vöðvana og undirbýr þá fyrir síendurtekin átök.
Þrátt fyrir það að gott sé að vera duglegur að æfa sig skaltu gæta að því að standa ekki tímunum saman á æfingasvæðinu. Rannsóknir hafa sýnt, að ef fólk verður fyrir meiðslum í golfi er algengast að það gerist á æfingasvæðum víðsvegar um veröldina. Motturnar geta verið of harðar eða undirlagið laust í sér. Ólöf María slasaði sig t.d. á mottu en það kostaði hana keppnisferilinn á Evróputúrnum þetta árið.
Beygðu þig sem minnst í bakinu, notaðu fæturna og beygðu þig í hnjánum þegar þú tíar upp, merkir boltann á flötinni eða veiðir hann upp úr holunni. Gættu líka að líkamsbeitingunni þegar þú lyftir pokanum þínum eða dregur kerruna þína. Jafnvel gæti verið skynsamlegt að kaupa sér þríhjóla kerru sem þú ýtir á undan þér, sérstaklega ef bakið er eithvað að stríða þér. Það að draga kerruna á eftir sér veldur misbeitingu vöðvanna í bakinu og álagið á aðra öxlina verður mun meira.
Þú skalt alltaf láta golfkennarann þinn vita ef þú kennir til í baki því hreyfingarnar þarf þá að aðlaga þannig að álagið verði sem minnst. Rétt uppstilling og hreyfingar sem taka mið af líkamlegu ástandi hvers og eins gera leikinn sársaukalausari, ánægjulegri og jafnvel gera þeim kleyft að stunda golf sem héldu að þeir gætu það ekki sökum bakvandamála.
Það er ölum hollt að stunda líkamsþjálfun og kylfingar ættu umfram aðra að leggja stund á liðleikaæfingar þar sem mest áhersla er lögð á bak, axlir og mjaðmir. Góðir magavöðvar geta hjálpað veikum bakvöðum að vinna sitt verk og ættu allir sem vilja viðhalda góðri heilsu að stunda einhverskonar magaæfingar reglulega.
Stórir boltar sem fáanlegir eru í íþróttabúðum eru snilldar magaæfingatæki, sérstaklega fyrir þá sem eru slæmir í baki eða hafa ekki sinnt magavöðunum sem skyldi gegnum tíðina. Hvernig magaæfingar henta hverjum og einum getur verið mismunandi og tillit þarf að taka til bakvandamálanna. Röng líkamsbeiting getur haft afdrifaríkar afleiðingar þannig að mikilvægt er að leita ráðlegginga hjá fagfólki áður en æfingar hefjast.
Ef bakvandamálin eru mikil og verkirnir þungir gæti verið nauðsynlegt að taka sér hlé frá golfi og hitta sjúkraþjálfarann, nuddarann eða kírópraktorinn. Það er mun betra að sleppa einum eða tveimur hringjum með félögunum heldur en að þurfa að hvíla í heilt sumar vegna þess ekki var hlustað á aðvörunarraddir líkamans.
Hugsaðu vel um bakið þitt og golfið verður ánægjulegra,
þinn bakhjarl, Ragga.
Sjá fleiri pistla: Á vellinum með Röggu.