Á vellinum með Röggu | þriðjudagur 28. júní 2005 | 09:27
Hvernig má ná sér á strik
Þarna ertu, spilandi þetta fína golf, þegar allt í einu—dynja ósköpin yfir Búmm! Hvort sem það er skolli skrambi eða eitthvað þaðan af verra, kemur það eins og köld vatnsgusa í andlitið á þér. Heilinn fer á hvolf og hjartað hamast í brjóstinu, en samt sem áður er skylda; að halda áfram með hringinn. Þú þarft að finna leið til þess að róa taugarnar og koma þér í einbeitingu aftur.
Vertu heiðarlegur: Áttu auðvelt með þetta? Flestir kylfingar þurfa hjálp við það að komast aftur á fæturna eftir svona áföll. Yfirleitt kemur verra skor í kjölfarið, og kylfingurinn vinur minn skilur ekkert í því af hverju hann eyddi síðdeginu ekki heima hjá sér að slá blettinn. Það að ná sér aftur á strik eftir slæma útreið er ótrúlegur hæfileiki hvort sem þú ert byrjandi eða lengra kominn. Enginn kann að meta það þegar menn vorkenna sjálfum sér, en allir dást að þeim sem hrista af sér hörmungarnar og halda áfram.
Eitt af mörgum skiptum sem ég atti kappi við Karenu Sævarsdóttur í Grafarholtinu byrjaði hún á því að fá 7 á fyrstu holu(3 yfir pari), á holu sem mörgum finnst vera kjörin fuglahola. Ég hugsaði mér gott til glóðarinnar en Karen vinkona mín með sitt fræga keppnisskap hélt nú ekki og endaði á nýju vallarmeti 72 höggum( 1 yfir pari).
Það getur vel verið að þú fáir ekki mikið af fuglum, en það er engin ástæða til annars en að kylfingar geti bætt sig á þessu sviði. Hver sem geta þín er, ættu eftirfarandi atriði að geta hjálpað þér við það að koma í veg fyrir að ein slæm hola skemmi fyrir þér heilan golfhring.
Næsta högg – betra!
Þegar tennisspilari á lélega uppgjöf, kemur yfirleitt miklu betri og hnitmiðaðari uppgjöf í kjölfarið. Stefndu að því að tileinka þér svipaða tækni í golfinu þínu, t.d. í teighöggi eftir slæma útreið á seinustu holu—þegar þörf er á að stoppa blæðinguna. Haltu neðar á kylfunni, jafnvel bakkaðu niður um eina tvær, og reyndu að kalla fram mjúka ¾ sveiflu sem sendir boltann eftir miðri braut með lítilli áhættu.
Rýndu í höggið, gagnrýndu það ekki
Þegar flestir kylfingar upplifa erfiðar holur, byrja þeir að brjóta sjálfa sig niður með því að kalla sig öllum illum nöfnum og enda hringinn annaðhvort bálreiðir eða niðurbrotnir. Í stað þess er ráðlegt að reyna að persónutengja ekki frammistöðu sína sjálfum sér; Skrambinn segir ekkert um þig; skrambinn er bara eitthvað sem gerðist. Reyndu að horfa á leikinn hlutbundið, eins og að þú horfir á sjálfan þig ofan frá.
Galdurinn er að vera þjálfarinn, en ekki gagnrýnandinn. Greindu ástæðurnar fyrir því að þú fékkst þetta háa skor; kannski slæsaðirðu out of bounds eða fjórpúttaðir vegna þess að þú gafst þér ekki nægan tíma. Reyndu að nálgast vandamálin með því að rannsaka ástæðurnar í stað þess að rannsaka blábjánann!!!! sem framkvæmdi höggið. Kylfingar sem ná sér fljótt á strik eftir hrakfarir eru færir í að greina aðstæður og ástæður, án þess að láta tilfinningarnar taka of mikinn þátt.
Haltu þig við leikskipulagið
Leikskipulag er eitthvað sem þú skalt alltaf hafa með í pokanum, fyrir hverja holu. Hvað ætlarðu að nota af teig? Hvoru megin á brautinni er betra að staðsetja sig fyrir innáhöggið? Ákvarðanir sem þessar er skynsamlegt að vera búinn að taka, slakur og með fullri einbeitingu áður en farið er út á völl þar sem tilfinningarnar geta borið mann ofurliði.
Þá, þegar skellurinn kemur skaltu ekki breyta leikskipulaginu. Komdu þér í rólegheitagír með því að undirbúa þig undir hvert högg eins og þú hefur alltaf gert, nota sama tíma og sömu atriði. Bara vegna þess að það er kunnuglegt, líður þér betur. Treystu ákvörðunum sem þú tókst áður en þú lagðir af stað, og mundu að alltaf er nægur tími til að bæta sig og vinna upp glataða holu.
Taktu leik-hlé
Þegar knattspyrnu- og körfuknattleiksþjálfarar sjá að liðin þeirra eru ekki í réttum gír, geta þeir tekið leikhlé til þess að snúa blaðinu við. Það er akkúrat það sem þú þarft að gera eftir lélega holu. Það að klæða þig úr öðrum skónum og hrista úr honum ímyndaða steinvölu eða skipta um hanska gefur þér örstutt hlé frá aðstæðum og hjálpar til við að brjóta upp neikvætt hugsanaferli áður en þú tekst á við næsta högg.
Þú getur líka virkjað tilfinningar þínar þér til hagsbóta. Kreistu hnefann þegar þú reiðist til þess að losa um spennu (-- í stað þess að henda kylfunni – það er betra – og öruggara) kenndu undirmeðvitundinni að það sé takkinn sem ýtt er á til þess að koma sér í stuð. Hvað það svo er sem þú velur til að losa um spennu, hafðu það tilbúið þegar þú lendir í krísu og æfðu þig að nota þessa tækni. Það að komast lifandi og heill úr hættuástandi byggist mest á því að vera viðbúinn.
Lærðu að þekkja tilfinningar þínar
Lykillinn að því að geta notað tilfinningarnar sínar er að vera meðvitaður um þær. Þekkja einkennin áður en þau valda skaða. Verðurðu reiður eftir lélega holu? Verðurðu hræddur? Reyndu að átta þig á hvorum hópnum þú tilheyrir. Reiðu ljónunum hættir til þess að kreista kylfuna og sveifla of hratt; hræddu hérarnir reyna að hafa of mikla stjórn á höggunum sínum og fara að stýra boltanum. Vitneskjan um það hvernig þú munt bregðast við andlega og líkamlega mun hjálpa þér að taka rétt á málunum og vinna þig út úr vandanum.
Veldu að vera sjálfsöruggur
Viðhorf er valkostur, sjálfsöryggi er viðhorf; þess vegna er sjálfsöryggi valkostur. Það er auðvelt að tapa áttum eftir lélega holu, sem gerir það að verkum að þú þarft að geta tekið ákvörðun um það að vera sjálfsöruggur þó þú sjáir enga ástæðu til þess.
Besta leiðin til þess að ná sjálfsörygginu aftur eftir lélega holu er að sjá fyrir sér góð teighögg sem þú hefur slegið á holunni sem þú ert að fara að spila. Eða ef þú ert á velli sem þú hefur sjaldan spilað, reyndu þá að sjá fyrir þér góð teighögg af svipuðum teig og þú ert að fara að slá af. Önnur góð hugmynd er að fletta í minningunum og finna blaðsíðurnar þar sem þér gekk vel við svipaðar aðstæður, t.d. þegar besta teighögg dagsins kom á eftir triple bógý. Með þetta í huga -skaltu brenna góðu höggin inn í minniskubbinn í huganum- svo þú getir fundið þau þegar mikið liggur við.
Spakmæli dagsins:
„Ég veit að Guð hefur lofað að leggja ekki á herðar okkar þyngri byrðar en við getum borið. Ég vildi bara óska þess að hann hefði ekki svona mikla trú á mér.“
Móðir Teresha
Kveðja Ragga:)