Á vellinum með Röggu | fimmtudagur 13. júlí 2006 | 09:40
Lengdu líftíma kylfanna þinna - Skrúbbaðu gripin reglulega
Lengdu líftíma kylfanna þinna
Skrúbbaðu gripin reglulega
Hver kannast ekki við muninn á því að halda á nýrri kylfu þar sem gripið hreinlega límist við fingurna og þeirri tilfinningu að gamla kylfan muni fljúga út á völl á eftir boltanum af því að gripið er sleipt eins og bananahýði?
Það kemur fyrir öðru hvoru að fólk kemur til mín í golfkennslu með gamlar kylfur sem það hefur annað hvort fengið lánaðar eða fengið í arf eftir löngu framliðinn ættingja. Ef kylfur hafa staðið lengi ónotaðar er ekki ólíklegt að gúmmíið í gripunum sé farið að harðna og þau orðin sleip af þeim sökum.
Gömlum gripum er oft ekki hægt að bjarga og þá er um tvennt að ræða, kaupa nýjar kylfur eða að láta skipta um grip. Sé valinn sá kostur að láta skipta um grip á kylfunum mæli ég með því að þið kannið hver kostnaðurinn er áður en ákvörðun um það er tekin. Þróun í hönnun á kylfum hefur tekið stórstígum framförum hin síðari ár og framboðið á góðum kylfum er alltaf að aukast. Nú til dags er hægt að fá tiltölulega ódýrar kylfur sem eru mun meira fyrirgefandi og gera meira fyrir kylfinginn heldur en ,,gömlu,, kylfurnar sem kostuðu formúgu á sínum tíma. Það getur því margborgað sig (golflega séð), að leggja í örlítið meiri kostnað og fjárfesta í nýjum kylfum heldur en að láta skipta um grip á þeim gömlu.
Áður en farið er í kostnaðarsamar aðgerðir er samt tilvinnandi að reyna að bjarga því sem bjargað verður.
Fyrir hvert mót sem ég tek þátt í hef ég það fyrir sið að þrífa kylfurnar mínar vel og vandlega. Þetta þýðir, að nokkrum sinnum á hverju sumri eru allar kylfurnar teknar upp úr pokanum og gripin skrúbbuð. Að sjálfsögðu nota ég tækifærið og þríf kylfuhausana í leiðinni.
Allt sem þú þarft er: Sápa(Ariel- Ultra uppþvottalögurinn, þessi græni góði hefur reynst mér ansi vel), naglabursti og sjóðandi heitt vatn úr krananum á baðherberginu.
Ég læt heita vatnið renna dágóða stund áður en ég hefst handa því heita vatnið mýkir upp gúmmíið og hjálpar sápunni að losa betur um fituna (úr höndunum á okkur) sem sest hefur á gripin. Síðan rúlla ég hverju gripi undir heitri bununni áður en ég skrúbba sápunni inn í gúmmíið. Mikilvægt er að skola sápuna vel í burtu, þetta skaltu endurtaka á hverju gripi þangað til öll drulla er horfin(það á eftir að koma þér á óvart hversu skítug gripin eru). Láttu svo gripið þorna upp við ofn því ekki er gott að þurrka gripin með neinu sem getur skilið eftir sig ló í gripinu. P.S: pútterinn fær alltaf að fara í bað með systkinum sínum?
Það er ekki síður mikilvægt að þrífa nýjar kylfur því gripin koma yfirleitt mjög skítug frá framleiðandanum.
Ef kylfurnar þínar eru orðnar gamlar og gripin hörð og sleip getur verið of seint að bjarga þeim en ef þú hugsar vel um kylfurnar þínar getur þú tryggt það að gripin endist von úr viti og verði eins og ný alveg þangað til þú ákveður að verðlauna sjálfan þig með nýjum verkfærum;).
Ástæðan fyrir því að ég þvæ kylfurnar mínar fyrir hvert mót er ekki bara til að viðhalda góðum gripum, heldur er það ansi gott fyrir sjálfstraustið að slá með glansandi hreinum kylfum sem sitja örugglega í höndunum á manni.
Gangi ykkur vel, kær kv. Ragga.