Á vellinum með Röggu | þriðjudagur 11. júlí 2006 | 10:00

10 góð ráð til þess að lækka skorið, frá teig að flöt


Nancy Lopez gefur þér góð ráð
10 góð ráð til þess að lækka skorið, frá teig að flöt:
Úr tímaritinu Golf For Women (Greinarhöfundur Lisa D. Mickey/þýðing: Ragnhildur Sigurðardóttir)

1. Sendu boltann í rétta átt!
Til þess að miðið verði rétt, þá finnst mér mun auðveldara að einblína á punkt rétt fyrir framan boltann heldur en mið sem er 200 m í burtu. Ég geng 2-3 m aftur fyrir boltann, horfi á lendingarstaðinn og sé fyrir mér höggið í huganum. Ég sé fyrir mér hvernig ég vil að boltinn fljúgi – og hvar ég vil að hann lendi. Síðan vel ég mér blett í grasinu í höggstefnunni 10 – 15 cm fyrir framan boltann. Þetta milli-mið er það sem ég einbeiti mér að, jafnvel eftir að kylfuhausinn hittir boltann.

2. Vertu jákvæð: Útilokaðu hætturnar
Margir horfa eftir brautinni, og það eina sem þeir sjá eru hætturnar. Þeir hugsa: "Vatnsgryfja vinstra megin, sandgryfja hægra megin – eins gott að slá ekki þangað." Ég einbeiti mér að því að vera jákvæð og sjá fyrir mér hvert ég ætla að senda boltann. Segðu við sjálfa þig: "Ég ætla að slá boltann á miðja flötina."

3. Góð byrjun skiptir máli
Í baksveiflunni er það eina sem ég hugsa um, að halda kylfuhausnum nálægt jörðinni á leiðinni aftur og passa að sveifluferillinn sé rólegur og mjúkur.
4. Endaðu jafn vel og þú byrjaðir
Í framsveiflunni hugsa ég um að framlengja handleggina í gegnum höggið í átt að lendingarstaðnum, yfir milli-miðið mitt. Milli-miðið er lykillinn að því að halda kylfuhausnum hornréttum á höggstefnuna í gegnum höggið.

5. Sláðu lengra, 1. hluti
Horfðu aftan á boltann frá því að þú stillir þér upp og þangað til að þú er búinn að slá boltann, ímyndaðu þér að þú sjáir kylfuhausinn pressa boltann af stað. Þetta hjálpar þér að halda höfðinu og efri hluta líkamans fyrir aftan boltann í gegnum höggið, sem eykur þann kraft til muna sem þú leggur í höggið.

6. Sláðu lengra, 2. hluti
Eitt af leyndarmálunum mínum um aukna högglengd (sem ég ætla nú að deila með ykkur),er að láta hægra hnéð vísa örlítið innávið í baksveiflunni. Þetta eykur spennuna sem myndast þegar undið er upp á axlirnar. Margir kylfingar rétta úr hnénu í baksveiflunnni og tapa þar með tveimur mikilvægum atriðum sem auka högglengd: Réttri bolvindu og krafti frá hægra fætinum. Fylgstu með því að hægra hnéð virki á réttan hátt – örlítið bogið og að það vísi innávið – eins mikið og hægt er, og taktu bara eftir hvað höggin þín lengjast.