Á vellinum með Röggu | fimmtudagur 15. júní 2006 | 11:14

Hvers ber að gæta þegar keyptur er pútter


„Púttin ættu að vera auðveldustu höggin í golfi. Strokan er tiltölulega stutt (miðað við golfsveifluna), ekki þarf að lyfta boltanum á flug og svæðið sem boltinn ferðast eftir er það sléttasta og best hirta á vellinum. Þrátt fyrir þetta allt saman eru púttin höggin sem gera út af við golfara á öllum getustigum,“ segir Ragnhildur Sigurðardóttir í nýjum pistli. 

Samkvæmt Dave Pelz fyrrverandi vísindamanni hjá NASA sem hefur staðið fyrir
rannsóknum á stutta spilinu síðustu 20 árin, eru púttin u.þ.b. 43% allra
högga nútímakylfingsins.

Ímyndið ykkur það:  Nærri helmingur allra högga atvinnu- og áhugamanna eru
pútt!!! 

Nauðsynjarnar þrjár! skv.  Dave Pels púttgúrú:)

1) Lengd púttersins og aðfallshorn skaftsins inn í kylfuhausinn(flatur/uppréttur) verður að henta líkamsbyggingu og stöðu kylfingsins á eftirfarandi hátt:
Lengd:    
*        Lengri en svo að púttæfingar valdi bakverkjum 
*        Styttri en svo að púttersendinn/skaftið rekist í regnfatnað eða annan fatnað.

Skaft upprétt-flatt:   
*        Þú verður að geta staðsett augun beint yfir boltanum(púttlínunni) og hendurnar beint undir öxlunum. 
 

2) Leiðrétting á feilum í höggstöðu.
Grandskoðaðu hvernig þú hittir boltann með því að líma impact límband á höggflöt púttersins og pútta 30 sinnum.

Skaft úr miðjum púttershaus:
Ef boltarnir lenda á pútternum tá-megin við miðju skaltu nota pútter þar sem skaftið gengur upp úr miðjum púttershausnum.

Skaft úr hæl á púttershaus:
Ef boltarnir lenda hæl-megin á púttershausnum , skaltu nota pútter þar sem skaftið gengur upp úr hælnum á pútternum. 

3) Lögun púttershaussins og línur á honum hjálpa þér að miða og ættirðu að gefa þér tíma til þess að finna út hvað hentar þér best í þeim efnum.
 

Mikilvæg umhugsunarefni!

1) Þyngd púttershaussins  ætti að henta tilfinningunni þinni (touch).
Finndu léttasta pútterinn og prófaðu að pútta með honum með mismunandi mörgum krónum límdum aftan á kylfuhausinn,  alveg þangað til þú finnur þyngdina sem hentar þér.  

2) Stærð grips og lögun þess:
*        Það fíngert að þú hafir gott vald á pútternum og skaft og handleggir geti unnið sem ein heild.
*        Það þykkt að hedurnar séu ekki að flækjast fyrir hvor annarri.
*        Lögunin hjálpi til við að viðhalda sömu staðsetningu handa alltaf!
Grip með flötum köntum og hliðum hjálpa til að staðsetja hendurnar rétt. 

3) Tilfinningin þegar boltinn er hittur ætti að vera mjúk áreynslulaus
stroka og snerting við boltann.  Það þýðir m.ö.o. þú þarft að velja á milli
púttera sem fyrirgefa snertifeila(hæll-tá þyngdarpunktar) og þeirra sem gefa
meiri tilfinningu fyrir púttinu(þyngdarpunktur í miðjunni) þegar snertingin
er rétt. 

Minniháttar umhugsunarefni   

1) Pútter sem snýr alltaf eins þegar maður leggur hann niður, eykur líkurnar á einsleitu gripi og uppstillingu án þess að áhyggjur þurfi að hafa af
miðinu.   

2) Útlit. Það er gott að eiga pútter sem er fallegur.  En mundu!!!  Ljótir pútterar geta líka skilað þér fantagóðu skori. 

3) Góð tilfinning og hljóð  þegar boltinn er hittur getur skilað betri árangri hjá kylfingnum.                             

Ekki taka ákvörðun út frá eftirfarandi atriðum!   

1) Verði.
2) Notkun á atvinnumannamótaröðum
3) Skoðunum vina og vandamanna byggðum á reynslu þeirra.

Sjá fleiri pistla: Á vellinum með Röggu.