Á vellinum með Röggu | föstudagur 10. júní 2005 | 14:08
Að fullkomna æfinguna

Ef þú ert eitthvað líkur öðrum kylfingum, hefur þú að öllum líkindum á reiðum höndum svar við því af hverju þú æfir lítið. Þú vinnur fullan vinnudag og hefur ekki orku til þess að fara á æfingasvæðið á kvöldin. Þegar þú hefur tíma – um helgar – finnst þér skemmtilegra að fara út að spila. Áður en þú veist af, eru liðnar margar vikur síðan þú fórst og æfðir þig seinast.
Viljirðu lægra skor, þá er nauðsynlegt að æfa. Skipuleggðu a.m.k. klukkutíma á viku í æfingar. Þar sem klukkutími er ekki langur tími, færðu hérna nokkur góð ráð hvernig skynsamlegt er að verja honum.
1. Skiptu æfingunni niður Ekki eyða öllum tímanum í driverinn! Stutta spilið er lykillinn að lægra skori. Pútt, vipp, og pitch eru u.þ.b. 65% golfleiksins, þannig að eina vitið er að sinna því best. Skiptu klukkustundinni þinni í þrjár 20-mínútna einingar;
1. Pútt
2. Vipp og pitch
3. Full sveifla..
2. Einbeittu þér að grunninum Góður grunnur: "Góður spilari" , Framúrskarandi grunnur: "Framúrskarandi spilari" Það er ekki hægt að yfirkeyra þessar æfingar: grip, staða, boltastaða, jafnvægi. Ef þú einblínir á þessi atriði í æfingatímanum þínum, muntu bæta þig, það er loforð! Ef þú hefur tök á því, æfðu þá fyrir framan spegil í nokkrar mínútur á dag. Spegillinn er besti vinur kylfingsins, hann segir alltaf satt. Þú þarft ekki að fara á völlinn til þess að tékka á gripinu eða uppstillingunni; notaðu tíma sem gefst að deginum.
3. Notaðu hjálpartæki Þar sem tíminn er knappur, hjálpar mikið ef hægt er að fá endurgjöf strax. Hjálpartæki eins og upptökuvél, spegill, þung upphitunarkylfa o.þ.h. – flýta framförum.
En kylfurnar þínar geta samt sem áður verið besta hjálpartækið. Fylgstu með afrekskylfingunum æfa sig: Þeir eru stöðugt að fylgjast með stefnu sinni og stöðu, leggja niður kylfur til þess að ganga úr skugga um að stefnan sé rétt, eins og á myndinni, og hvort líkaminn sé í réttri stöðu í baksveiflunni. Ef það virkar fyrir þá, þá virkar það fyrir þig: Notaðu þessi hjálpartæki alltaf!
4. Tíaðu upp boltann Á PGA Meistaramótinu 2003 sást til Nick Faldo á æfingasvæðinu. Í klukkutíma sló hann einungis með 7 járni, og hann tíaði hvern einasta bolta. Ef atvinnumennirnir tía boltann, ættir þú kannski að prófa líka, sérstaklega ef að gengur illa að hitta hann almennilega. Að sjá boltann fljúga almennilega eykur sjálfstraustið. Það gefur þér líka betri tilfinningu fyrir því hvernig þú ert að hreyfa líkamann -- "Ertu að vinda nóg upp á þig?" "Ertu að flytja þungann rétt?" – og minni einbeiting fer í að hitta boltann.
5. Gerðu æfingarnar að skemmtun:) Leiktu þér og farðu í keppni við sjálfan þig. Raðaðu nokkrum boltum í kringum holuna (ca pútterslengd frá)á æfingaflötinni og reyndu að setja þá alla í. Vippaðu inn á æfingaflötina frá hinum ýmsu stöðum og reyndu síðan að setja púttið í. Ímyndaðu þér að þú sért úti á velli að bjarga pari. Þegar þú lendir svo í svipuðum aðstæðum úti á velli ertu mun betur undirbúinn.