Á vellinum með Röggu | föstudagur 3. febrúar 2006 | 23:28

Golf og smáfólkið á samleið – en vandið ykkur!


Ragnhildur Sigurðardóttir, golfleiðbeinandi og margfaldur Íslandsmeistari, hefur sent frá sér nýjan pistil og er með ráðleggingar til okkar þar sem hún segir að golf og börnin eigi samleið. Hún segir: “Vorið er tilvalinn tími til þess að leyfa börnunum þínum að kynnast golfi. Ef þau sýna áhuga, ættu þau að vera orðin vel vallarhæf þegar sumarleyfið brestur á.
Hér eru nokkur góð ráð til að brjóta ísinn:

• Bjóðið þeim með á völlinn, og gerið þeim spennandi tilboð:  „Viltu koma með mér upp á golfvöll og læra að spila golf eins og Tiger Woods?“

• Ef þau vilja ekki fara með, skaltu ekki neyða þau.  Áhuginn er nauðsynlegur viljirðu að þau eigi framtíð með þér á vellinum.

• Ef þau fara með, skaltu reyna að gera dvölina skemmtilega.  Passaðu að þau hafi nóg að drekka, og nóg að sýsla.  Game boy leikjatölva getur t.d. stytt stundir milli stríða á æfingasvæðinu, sé hún til á heimilinu;) Veðurfar á Íslandi getur líka sett strik í reikninginn.  Passaðu þig að grislingunum verði ekki kalt eða þau verði neikvæð vegna veðursins, þá er ekki víst að þau vilji koma með ykkur næst.
• Lofaðu þeim að slá nokkra bolta á æfingasvæðinu en passaðu þig á því að tía upp alla bolta.  Passaðu þig á því að halda heim á leið áður en smáfólkið hefur fengið nóg.

• Gættu að því að viðfangsefnin séu við hæfi, láttu þau pútta stutt pútt á æfingaflötinni, pútt sem þau eiga auðvelt með að setja niður, hrósaðu þeim.  Ef þau fara með þér út á völl (utan háannatíma) gættu þá að því að þau leiki stuttar holur, spili t.d. frá 100 m hælnum.  Taktu stubbinn á háhest ef hann verður þreyttur.
• Það gæti verið sniðugt að bjóða vini eða vinkonu smáfólksins með, góður félagsskapur og sameiginlegar ánægjustundir eru öflugt hjálpartæki í áhugamótuninni;)

• Flestir krakkar eiga auðvelt með að ná hreyfingunum strax og geta sveiflað mjúkt og átakalaust.  Ekki leiðrétta of mikið, lofið þeim að leika sér.

• Leggið ríka áherslu á öryggi og siðareglur, en ekki vera of smámunasöm, þannig að reglurnar verði ekki yfirþyrmandi.
• Ef þeim finnst gaman, skráið þau á námskeið.  Ekki er verra að viðkomandi golfkennari hafi gaman af því að umgangast börn;)

• Keyptu 5/7 tré, wedge 7 járn og pútter.  Ekki nota styttar kylfur, sköftin eru of stíf fyrir börn,  enda er mikið úrval til af góðum barnakylfum og verðið lækkar með hverju árinu sem líður."

-kveðja Ragga