Á vellinum með Röggu | miðvikudagur 28. desember 2005 | 11:02

Áramótaheit ??


Áramótaheit margra kylfinga eru væntanlega að nota veturinn til þess að vinna í sveiflunni sinni þannig að hægt verði að koma sjá og sigra Sigurjón  digra næsta sumar. Eftirfarandi atriði ættu að geta hjálpað ykkur að átta ykkur betur á því hvað raunverulega gerist þegar boltinn fer ekki þangað sem hann á að fara. Boltaflugslögmálin eru í raun og veru mjög einföld! 

Tveir þættir hafa áhrif á höggstefnu: Ferill kylfuhauss og afstaða kylfuhaussins/höggflatarins(þ.e.a.s. hvernig hann snýr) gagnvart höggstefnunni þegar boltinn er hittur.

Þrír þættir hafa áhrif á högglengd:  Hvar boltinn lendir á kylfuhausnum, hraði á kylfuhaus þegar hann snertir boltann og aðfallshorn kylfuhaussins að boltanum.

Með því að skilja hvernig þessir þættir hafa áhrif í mismunandi höggum, getur hver sem er skoðað höggin sín og metið hvað gerðist í raun og veru þegar boltinn flaug af stað.

FERILL KYLFUHAUSS: 
 Ferill kylfuhaussins ásamt afstöðu kylfuhaussins gagnvart höggstefnunni þegar bolti er hittur, hefur áhrif á það hver byrjunarstefna höggsins er. Því hraðar sem kylfuhausinn ferðast gegnum höggið því meiri áhrif hefur ferill kylfuhaussins á byrjunarstefnuna.






 

AFSTAÐA KYLFUHAUSS GAGNVART HÖGGSTEFNU:
Hvert kylfuhausinn miðar þegar boltinn er hittur ákvarðar í hvora áttina boltinn mun sveigja/ekki sveigja á flugi sínu að áfangastað.
Afstaða kylfuhaussins hefur einnig áhrif á byrjunarstefnu boltans.


HVAR Á KYLFUHAUSNUM LENDIR BOLTINN:
Boltinn mun fljúga og ferðast lengra ef hann lendir á miðjum kylfuhausnum(í þyngdarpunkti kylfunnar).




HRAÐI Á KYLFUHAUS:
Því hraðar sem kylfuhausinn ferðast í gegnum impact stöðu því lengra verður höggið. 




AÐFALLSHORN KYLFUHAUSSINS:
Hvernig kylfuhausinn nálgast boltann hefur áhrif á myndun bakspuna.  Því brattar sem kylfan kemur að boltanum þeim mun meiri bakspuni.  Bakspuninn eykur hæð höggsins, dregur úr högglengd og vinnur á móti hliðarspuna á boltann.




 

Saman vinna þessir þættir að því að móta hvert einasta golfhögg sem við sláum.
Vegna þess að stöðugleikinn er meiri hvað varðar aðfallshorn kylfuhaussins, hraða á kylfuhaus í gegnum höggið og hvar á kylfuhausnum boltinn lendir þá hafa þeir þættir yfirleitt minni áhrif.

Ferill kylfuhaussins og afstaða hans gagnvart höggstefnunni eru mun breytilegri frá höggi til höggs og hafa því mun meiri áhrif á útkomuna.

Utanaðkomandi áhrifavaldar geta haft sitt að segja:

SPUNI:
Flái kylfunnar, gerð boltans og efnið í kylfuhausnum leggja sitt af mörkunum hvað varðar spunann bæði stefnu og það hve mikill spuni myndast.

UMHVERFISÞÆTTIR:
Lega boltans, hitastig, rakastig, vindstig og loftþrýstingur hafa talsverð áhrif á boltaflug.

Enginn framangreindra þátta hefur þó jafn mikil áhrif á stefnu boltans og afstaða kylfuhaussins gagnvart höggstefnunni þegar boltinn er hittur.  Það er ástæðan fyrir því  hvers vegna út – inn sveifluferill getur skilað boltanum bæði til vinstri og hægri

Púll - högg sem byrjar til vinstri við höggstefnu og heldur áfram í þá átt. 

Ástæða: kylfuhaus miðar í söfu stefnu og sveifluferill.
Púll- slæs – högg sem byrjar til vinstri en tekur svo að beygja til hægri þegar boltinn fer að tapa hraða
Ástæða:  kylfuhaus miðar hægra megin við feril kylfuhauss þegar boltinn er hittur og hliðarspuni kemur á boltann, sökum hraða á boltanum þegar hann leggur af stað hefur spuninn ekki áhrif fyrr en boltinn fer að tapa ferð.

Á sama hátt getur inn – út sveifluferill skilað boltanum bæði til hægri og vinstri.
Púss – högg sem byrjar til hægri og heldur áfram í þá átt.
Ástæða: kylfuhaus miðar í söfu stefnu og sveifluferill.
Púss-húkk – högg sem byrjar til hægri en tekur svo að beygja til vinstri þegar boltinn fer að tapa hraða.


Samband bakspuna og hliðarspuna hefur mikil áhrif á boltaflug.  Mikill flái á kylfu eykur bakspuna í golfhöggi, og bakspuni vinnur á móti hliðarspuna. T.d. eru púll og púss mjög algeng með 9-járni þar sem flái kylfunnar er mikill og mikill bakspuni myndast.  Slæs og húkk eru miklu algengari þegar slegið er með trékylfum og löngum járnum sem hafa tiltölulega lítinn fláa, bakspuninn verður hlutfallslega lítill og áhrif hliðarspuna verða mikil.

Undirstöðuþekking á boltaflugslögmálunum veitir þá innsýn sem þarf til að greina hvað gerðist þegar boltinn er hittur.


Til þess að átta sig á hvernig afstaða kylfuhaussins er gagnvart höggstefnunni er sniðugt að, slá nokkur högg með dræver og 3-járni:  Ef boltinn slæsar er kylfuhausinn opinn, ef boltinn húkkar er kylfuhausinn lokaður.

Til þess að átta sig á sveifluferlinum er sniðugt að slá nokkra bolta með 9-járni eða pitching wedge:  Ef boltarnir eru púllaðir til vinstri er sveifluferillinn út- inn(hægri til vinstri).  Ef boltarnir eru pússaðir til hægri er sveifluferillinn inn – út(vinstri til hægri).

Jafnvel þó þessar upplýsingar liggi á borðinu, eiga flest vandamál áhugamannsins rætur að rekja til  þekkingarskorts. Boltinn er heilalaus og hefur ekki hugmynd um fyrirætlan kylfingsins, hann hegðar sér í nákvæmu samhengi við „leiðbeiningar“ kylfuhaussins þessa 1/500 úr sekúndu sem snertingin varir. 

Sama hvað hver segir og hvaða kenningar þú hefur um sveifluna þína:  Óumdeilanleg eðlisfræðileg lögmál stjórna öllum golfhöggum sem slegin hafa verið og einnig þeim sem slegin munu verða. 

Gleðilega hátíð, og gangi ykkur vel:)
Nýárskveðja, Ragga.


(Heimild: Golf Magazine.)