PGA | miðvikudagur 22. febrúar 2012 | 15:23

GolfTV: Tíu bestu holukeppnisspilarar sögunnar


Heimsmótið í holukeppni hefst í dag og er tilvalið að fræðast aðeins um það hvaða kylfingar hafa verið hvað sterkastir í holukeppni í gegnum tíðina. Sjónvarpsþátturinn Golfing World, sem er sýndur á Skjár Golf, tekur saman þá tíu bestu í holukeppni í golfsögunni.

Kylfingar líkt og Ian Poulter, Tiger Woods, Sir Nick Faldo, Colin Montgomerie, Gary Player og fleiri koma þar við sögu. Það kemur kannski fáum á óvart en Golfing World velur spænsku goðsögnina Seve Ballesteros sem besta holukeppnisspilara allra tíma.