Hleð inn spilara...


19. holan | þriðjudagur 21. febrúar 2012 | 07:44

GolfTV: Tíu verstu tískuslysin


Fatnaður í golfíþróttinni skipar sífellt meiri sess og í dag er til urmull fyrirtækja sem sérhæfir sig í framleiðslu á golffatnaði. Nokkrir af þekktustu kylfingum sögunnar hafa skartað misfallegum flíkum á golfvellinum, sumt hefur slegið í gegn en annað ekki.

Golfing World sjónvarpsþátturinn, sem t.d. er sýndur á Skjár Golf, gerir skemmtilega samantekt á tíu verstu tískuslysunum á golfvellinum. Þekktir kylfingar líkt og Jesper Parnevik, Payne Stewart, Ian Poulter, bandaríska Ryder-liðið og John Daly koma þar við sögu.

Golffatalínan frá John Daly er að mati Golfing World versta tískuslysið á golfvellinum og eru vafalaust einhverjir sem taka undir það. Ritstjórn Kylfings.is er þó á því að gulllitaði bolurinn sem Ian Poulter klæddist eitt sinn í móti, sé það allra versta sem sést hefur á golfvellinum í manna minnum.